Ragnar styður hjúkrunarfræðinga: Önnur lögmál gilda um elítuna – „Til háborinnar skammar“

„Stjórnvöld hafa séð til þess að ákveðin elíta innan stjórnkerfisins, þar með talið þau sjálf, lúta allt öðrum lögmálum þegar kemur að markmiðum lífskjarasamningsins,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR.

Ragnar Þór skrifar pistil á Facebook-síðu sína í ljósi yfirlýsinga stjórnvalda vegna kjarabaráttu hjúkrunarfræðinga þess efnis að öll vinna sé samkvæmt því sem var markað með Lífskjarasamningunum á sínum tíma.

Fagna því ef aðrir ná betri árangri

„Lífskjarasamningurinn var ekki samningur sem átti að ganga yfir aðrar starfsstéttir sem ekki voru hluti af honum. Það hljóta allir, sem minnsta vit hafa á kjarasamningagerð, að gera sér grein fyrir því að við sem komum að þessum samningum höfðum ekkert og höfum ekkert umboð til að semja fyrir þær starfsstéttir sem ekki voru hluti af Lífskjarasamningnum.“

Ragnar segir að stjórn VR styðji í einu og öllu kjarabaráttu hjúkrunarfræðinga og allra stétta og geri ekki kröfu um að aðrir fái það sama eða minna en þau fengu. „Heldur fögnum við því ef aðrir ná betri árangri sem við getum svo haft að leiðarljósi í næstu samningum. Betri árangur annara mun ekki hafa nokkur áhrif á endurskoðun okkar í haust.“

Til skammar

Ragnar segir það vera til „háborinnar skammar“ að hér séu opinberar og samfélagslega mikilvægar stéttir án kjarasamninga árum saman. Á sama tíma hafi efsta lag stjórnkerfisins „skammtað sér krónutöluhækkanir sem jafngilda lágmarkslaunum, jafnvel margföldum, fyrir 100% vinnuframlag.“

Ragnar vill að því sé haldið til haga að það eina sem raunverulega ógnar lífskjarasamningum séu stjórnvöld sjálf.

„Það stendur ekki steinn yfir steini þegar kemur að efndum loforða og hefur mest allur tími og vinna verkalýðshreyfingarinnar farið í það að endursemja og krefja sömu stjórnvöld um sömu hluti og samið var um og skrifað var undir.“

Máli sínu til stuðnings nefnir Ragnar verðtryggingarmálið svokallaða og húsnæðismálin sem hann segir að fjármálaráðuneytið hafi haldið í gíslingu mánuðum saman og útþynnt í nánast ekki neitt.

„Það verður fróðlegt að sjá hvernig stjórnvöldum mun ganga að fara með verkalýðshreyfinguna í fanginu inn í kosningaárið því eitt er víst að eins og staðan er í dag eru forsendur lífskjarasamningsins brostnar. Og fátt sem getur komið í veg fyrir að samningum verði sagt upp í haust.“

Komandi vetur gæti orðið erfiður

Ragnar segir að þessi staða sé ekki hjúkrunarfræðingum að kenna, staðan sé í boði stjórnvalda.

„Stjórnvalda sem ekki eru orðanna virði og lítið sem ekkert að marka loforð þeirra, öðrum sem nú eru í samningaviðræðum til varnaðar.“

Ragnar tekur að lokum fram að hann hafi átt mjög góð samskipti við Ásmund Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, ásamt húsnæðis- og mannvirkjastofnun í þeirri vinnu sem unnin hefur verið með tillögum í húsnæðismálum. Ragnar endar pistilinn á þessum orðum en ef marka má orð hans gæti komandi vetur orðið erfiður:

„Við skulum setja okkur í stellingar fyrir komandi vetur. Ef hann verður harður verður það í boði stjórnvalda og við skulum ekki leyfa þeim að komast upp með að klína þeirri ábyrgð á aðra.“