„Með fullri virðingu fyrir öllu því góða fólki sem nú reynir og gerir sitt allra besta í baráttunni gegn veirunni finnst mér þetta undarleg rök,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR.
Ragnar Þór furðar sig á því í færslu á Facebook hvers vegna Íslendingar, sem koma til landsins frá útlöndum, þurfi að fara í tveggja vikna sóttkví en ekki útlendingar. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir kynnti þetta á blaðamannafundi sem haldinn var í gær. Þórólfur útskýrði þetta með þeim orðum að ferðamenn héldu sig í minni hópum og blönduðust Íslendingum ekki mikið.
Ragnar Þór segir að margir félagsmenn VR og annarra stéttarfélaga séu í mikilli snertingu við ferðamenn. Þetta eigi til dæmis við um afgreiðslufólk í verslunum og starfsfólk á hótelum svo eitthvað sé nefnt.
„Tala nú ekki um heilbrigðisstarfsfólk en varla er liðinn sólarhringur frá því að nánast allt heilbrigðisstarfsfólk á Húsavík er óvinnufært og farið í sóttkví vegna ferðamanns sem var smitaður,“ segir Ragnar í færslu sinni í gærkvöldi.
Sjálfur segist Ragnar telja líklegt að ferðamenn séu einmitt í meiri snertingu við fólk heldur en téðir landsmenn sem flestir halda sig meira og minna heima, það er ef þeir eru ekki þegar í sóttkví. Ragnar nýtir þó tækifærið og hrósar þeim sem halda samfélaginu gangandi á þessum erfiðu tímum.
„Mikið getum við þakkað öllu því flotta starfsfólki sem stendur vaktina í framlínu stórmarkaða og í verslun og þjónustu ásamt öllum þeim sem nú sinna heilbrigðisþjónustu eða öðrum framlínustörfum í okkar samfélagi og halda hlutunum raunverulega gangandi.“