Ragnar sendir neyðarkall: Þessi bylgja verður sú langstærsta – Kerfið gæti drukknað

Ragnar Freyr Ingvarsson, læknir og fyrrverandi yfirlæknir Covid-göngudeildarinnar, lýsir miklum áhyggjum af stöðu mála í kórónuveirufaraldrinum innanlands. Hann hefur einkum áhyggjur af Landspítalanum og óttast að bylgjan gæti hreinlega drekkt kerfinu.

„Það er núna ljóst að þessi bylgja verður sú langstærsta hingað til og mun skila sér í auknum innlögnum á Landspítala með tilheyrandi raski á starfsemi og svo landinu öllu,“ segir Ragnar á Facebook-síðu sinni og deilir viðtali RÚV við Má Kristjánsson, formann farsóttarnefndar Landspítalans.

Í viðtalinu tjáir Már sig meðal annars um hópsmit sem kom upp á Landspítalanum í gærkvöldi, en um er að ræða stærsta hópsmitið sem komið hefur upp þar síðan á Landakoti í október í fyrra. Már segir að smit hafi einnig komið upp á geðdeild, öldrunardeild og daglega á bráðamóttökunni. Þá fari starfsmönnum spítalans í einangrun hratt fjölgandi og eru þeir í dag 95 talsins.

„Síðastliðna tvo daga höfum við haft það þannig að starfsmenn sem eru í sóttkví koma til vinnu engu að síður en þurfa að fara í sóttkví B - og eru þá að fara í PCR próf annan hvern dag og nota fullan varnarbúnað. Þetta er mjög íþyngjandi fyrir alla starfsemi. Alþingi til dæmis, þar var hægt að kalla inn varaþingmenn en við höfum ekkert varafólk, við erum bara fólkið,“ sagði Már við RÚV.

Í færslu sinni bendir Ragnar á að vandinn sé, eins og margoft hafi komið fram, skortur á mannskap.

„Okkur vantar fólk! Það eru fjöldi heilbrigðisstarfsmanna sem hafa kosið sér annan starfsvettvang en Landspítala. Við þurfum að fá þau til baka til starfa! Hvort sem þarf að borga álag, hærri laun eða með skattaívilnunum, skattaafslætti eða skattleysi í einhvern tíma. Ella mun þessi bylgja drekkja kerfinu!“