Ragnar Thorarensen, löggiltur fasteignasali og sérfræðingur í fasteignamati, segir að trúverðugleiki Þjóðskrár Íslands hafi beðið mikinn hnekki hjá fasteignaeigendum og sveitarfélögum.
Í grein í Morgunblaðinu í dag segir Ragnar að í janúar síðastliðnum hafi uppgötvast stór mistök innanhúss hjá Þjóðskrá Íslands í fasteignamati fyrir árið 2021 sem senn er á enda.
„Um var að ræða mistök varðandi verðmat á stæðum í bílageymslum sem tengd voru íbúðum í fjölbýlishúsum bæði á landsbyggðinni og í Reykjavík. Mistökin fyrir eigendur á landsbyggðinni eru þó sýnu verri því hvert stæði var verðmetið eins og um væri að ræða stæði í bílageymslu í Skuggahverfinu í Reykjavík,“ segir Ragnar í grein sinni og nefnir dæmi:
„Íbúð á Akureyri upp á 36,4 fermetra með stæði í bílageymslu var með fasteignamat upp á 28.050 þúsund krónur. Alveg jafnstór íbúð á sömu hæð í sömu blokk, en án bílastæðis í bílskýli, var verðlögð á 19.150 þúsund krónur. Þarna munar því 8,9 milljónum króna sem stæðið fær í fasteignamat. Þetta er glórulaust verðmat,“ segir Ragnar.
Hann segir að þetta leiði auðvitað til þess að eigendur þessara íbúða greiða mun hærri fasteignagjöld fyrir núgildandi ár og þeir sem hafa keypt þessar íbúðir í ár hafa greitt líka hærri stimpilgjöld af kaupsamningi vegna þessa.
„Það alvarlega í þessu öllu er að stjórnendum var bent á þessa villu en þeir hunsuðu ábendinguna. Það sem stjórnendur ákváðu var að leiðrétta þessi mistök í fasteignamati ársins 2022, sem tekur gildi núna 31. desember og gildir fyrir árið 2022. Þá lækkar þessi íbúð með stæði í bílageymslunni niður í 24 milljónir króna eða um –14,4% en íbúðin sem er án stæðis hækkar upp í 19.750 þúsund krónur eða um 3,1%.“
Ragnar segir að leiðréttingin á fasteignamatinu komi ekki til með að leiðrétta ofgreidd fasteigna- og stimpilgjöld af þessari og öðrum íbúðum fyrir þetta ár þar sem stjórnendur ákváðu að leiðrétta ekki mistökin.
„Það liggur samt skýrt fyrir samkvæmt stjórnsýslulögum að slíkar villur ber að leiðrétta enda er þetta mjög íþyngjandi fyrir eigendur og kaupendur þessara íbúða sem þurfa að greiða hærri fasteigna- og stimpilgjöld vegna þessara mistaka. Getur virkilega verið að þessir stjórnendur hafi ekki ráðfært sig við ágæta lögfræðinga stofnunarinnar um þetta mál? Var farið fram hjá þeim og forstjóra við ákvörðun um viðbrögð við þessari íþyngjandi villu? Ef það er raunin þá er það afskaplega alvarlegt.“
Ragnar segir að ef raunin sé sú þá sé einfaldlega verið að brjóta á réttindum fasteignaeigenda.
„Opinber stofnun, sem hefur óbeint með skattlagningu á borgara þessa lands að gera, getur ekki leyft sér að leiðrétta ekki svona mistök þegar þau koma upp. Henni ber að leiðrétta þau strax. Það er ljóst að trúverðugleiki stofnunarinnar bíður mikinn hnekki hjá fasteignaeigendum og sveitarfélögum sem eiga að geta treyst því að stofnunin vandi til verka og komi heiðarlega fram gagnvart almenningi.“