Ragnar segir Ás­laugu Örnu sýna skort á lífs­reynslu vegna þyrlu­flugsins

„Þegar fólk með litla lífs- og starfs­reynslu þiggur veg­semd eða verð­mæti án þess að sjá hvernig aðrir sjá þetta er um for­réttinda­blindu að ræða.“

Þetta segir Ragnar Önundar­son, fyrr­verandi banka­stjóri og banka­maður, um þyrlu­flug Ás­laugar Örnu Sigur­björns­dóttur með Land­helgis­gæslunni. Eins og greint var frá í gær þáði Ás­laug Arna flug með þyrlu gæslunnar til að sækja sam­ráðs­fund um CO­VID-19 far­aldurinn. Stundin fjallaði um málið í gær en í fréttinni kom fram að Ás­laug hefði verið stödd í hesta­ferð með föður sínum á Suður­landi og þyrlan verið að fljúga með sér­fræðinga Veður­stofunnar á Lang­jökul.

Ragnar hefur verið nokkuð gagn­rýninn á Sjálf­stæðis­flokkinn undan­farin misseri og skemmst er að minnast gagn­rýni hans á prófíl­mynd Ás­laugar árið 2017. Þá hefur hann áður tjáð sig um meint reynslu­leysi bæði Ás­laugar Örnu og Þór­dísar Kol­brúnar. Var Ragnar sakaður um karl­rembu í kjöl­farið.

„Sýnir skort á lífs­reynslu“

Í færslu á Face­book-síðu sinni fjallar hann um það sem hann kallar for­réttinda­blindu og nefnir í því sam­hengi Þór­dísi Kol­brúnu Reyk­fjörð Gylfa­dóttur og nú mál Ás­laugar Örnu Sigur­björns­dóttur.

„Þór­dís K. R. Gylfa­dóttir þáði að vera tekin fram fyrir reynslu­boltann sem á­vann sér fyrsta sæti lista flokks hennar á Vestur­landi og að vera gerð að ráð­herra, var um slíka blindu að ræða. Það var ekki far­sælt upp­haf að pólitískum ferli og nærði etv. með henni rang­hug­myndir um sjálfa sig, of­mat. Kjána­lega myndin af henni og ljós­hærðu vin­konunum sjö fram­kallar við­eig­andi hroll,“ segir Ragnar sem snýr sér svo að Ás­laugu Örnu.

„Ás­laug A. Sigur­björns­dóttir var komin inn á þing áður en hún út­skrifaðist. Fljót­lega þáði hún að vera gerð að ráð­herra, tekin fram fyrir nokkra reynslu­bolta. Frami hennar og fjöl­miðla­ljósið hafa blindað hana svo hún nær ekki að sjá sjálfa sig eins og kjós­endur sjá hana. Að þiggja greiða eins og þyrlu­flug úr hendi undir­manns sýnir skort á lífs­reynslu. Hún fékk reynslu­bolta sér til að­stoðar í ráðu­neytinu og bætti þar með upp skortinn á starfs­reynslu, en lífs­reynsluna þarf hún að öðlast á sama hátt og aðrir, með því að reka sig á.“

Dómgreindarbrestur, segir Rósa

Ragnar segir að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæðis­flokksins, þurfi að átta sig á að „yfir­borðs- eða sýndar­mennska“ geti ekki leyst al­vöru pólitík af hólmi.

„Stundum er unnt að plata alla um tíma, það er hægt að plata suma alltaf, en það er ekki mögu­legt að plata alla alltaf. Kjós­endur sjá í gegnum slíkt. Lífs- og starfs­reynsla er ó­missandi. Þeir sem þrá að standa i sviðs­ljósinu án reynslu munu reka sig á í sviðs­ljósinu. Það er ekki gaman.“

Fleiri hafa tjáð sig um málið, þar á meðal Rósa Björk Brynjólfs­dóttir, þing­maður VG, sem gagn­rýndi Land­helgis­gæsluna á Twitter-síðu sinni í gær. Hún sagði það vera eitt að starfs­menn Land­helgis­gæslunnar sjái ekki hversu ó­við­eig­andi það er að bjóða ráð­herra skutl fram og til baka í prívat-hesta­ferð með þyrlunni. „En að ráð­herra sjái það ekki sjálf er dóm­greindar­brestur,“ sagði Rósa.

Í til­kynningu sem Land­helgis­gæslan sendi frá sér í morgun kemur fram að enginn auka­kostnaður eða auka­fyrir­höfn hafi hlotist af þessu skutli með ráð­herra.

Til­kynning gæslunnar var svo­hljóðandi:

„Mið­viku­daginn 19. ágúst fékk Land­helgis­gæslan upp­lýsingar frá jarð­vísinda­mönnum um að kanna þyrfti hvort hlaup hefði orðið í Svart­á við Lang­jökul. Óskað var eftir því að Land­helgis­gæslan færi og kannaði svæðið en það reyndist ekki unnt vegna skýja­fars yfir jöklinum á mið­viku­degi. Var þá á­kveðið að flugið yrði á fimmtu­degi. Í að­dragandanum hafði Land­helgis­gæslan flogið með sér­fræðinga vegna hugsan­legra um­brota í Vatna­jökli og allar líkur á að á­fram­hald yrði á.

Í sím­tali for­stjóra Land­helgis­gæslunnar og dóms­mála­ráð­herra bar þetta mál á góma og að um væri að ræða all­nokkur flug vegna jarð­hræringa og hugsan­legra elds­um­brota. Bauð for­stjórinn dóms­mála­ráð­herra ferð með þyrlunni enda lá fyrir á­höfnin þyrfti að sinna um­ræddu verk­efni.

Það skal tekið fram að öll flug sem þessi eru innan flug­tíma­á­ætlunar Land­helgis­gæslunnar sem reiknast sá lág­marks­tími sem þarf til að halda á­höfnum í þjálfum og tryggja réttindi þeirra til björgunar­flugs. Ekki er því um auka­kostnað né aukna fyrir­höfn eða skerta við­bragðs­getu þar sem þyrlan var full­mönnuð til út­kalls.“

,,Forréttindablinda” er gagnlegt hugtak. Þegar fólk með litla lífs- og starfsreynslu þiggur vegsemd eða verðmæti án þess...

Posted by Ragnar Önundarson on Þriðjudagur, 25. ágúst 2020