Ragnar segir að henni sé kennt um allt: „Erum við virki­lega komin á þann stað“

„Það verður fróð­legt að sjá hverju henni verður kennt um næst,“ segir Ragnar Þór Ingólfs­son, for­maður VR, í pistli sem hann birti á Face­book-síðu sinni fyrr í dag.

Í pistlinum skrifar Ragnar um „hel­vítis bús­á­halda­byltinguna“ og segir að í raun sé henni kennt um allt sem af­laga fer.

„Er ég einn um að finnast sorg­legt að hlusta á á­kveðin öfl í okkar sam­fé­lagi tala niður Bús­á­halda­byltinguna og setja hana í sam­hengi við annars hræði­lega skot­á­rás á bíl borgar­stjóra og fleiri ó­dæðis­verk? Er ég einn um að finnast þessar til­raunir vera til­raun til þöggunar og vinna þannig gegn mál­efna­legri gagn­rýni og nauð­syn­legu að­haldi á stjórn­málin, sér­hags­muna­öflin og aðra sem gegna mikil­vægum opin­berum stöðum.“

Ragnar spyr hvort ekki sé verið að rugla saman þeim tug­þúsundum sem lögðu leið sína niður á Austur­völl með frið­sömum hætti, með potta og pönnur, sleifar og könnur, til að mót­mæla gegndar­lausri spillingu í ís­lensku þjóð­fé­lagi.

„Spillingu sem sam­kvæmt al­þjóð­legum mælingum hefur ekki tekist að upp­ræta, nema að mjög litlu leiti ef þá nokkuð. Erum við virki­lega komin á þann stað að bera saman sið­rof þings og þjóðar þar sem dæmdir glæpa­menn rændu sam­fé­lagið innan frá og tóku með sér heila stjórn­mála­stétt sem var á styrktar­spenum þeirra?“

Í pistli sínum bendir Ragnar á að stjórn­mála­menn hafi þegið tug­milljónir króna í styrki frá fyrir­tækjum sem settu sam­fé­lagið á hliðina með skelfi­legum af­leiðingum.

„Stjórn­mála­flokkar sem þáðu himin­háa styrki sem tryggðu sér­hags­munum það að geta skrifað sínar eigin leik­reglur með stuðningi lög­gjafans? Ætlum við bara að sætta okkur við að mál­efna­leg gagn­rýni, nauð­syn­legt að­hald og réttur okkar til að mót­mæla spillingu verði gerður að ein­hvers­konar of­beldista­bú og haturs­glæp vegna frá­vika? Al­var­legra of­beldis­mála sem upp hafa komið á síðustu misserum.“

Ragnar segir að allt rétt­sýnt og vel inn­rætt fólk hafni hvers konar of­beldi, öfga­fullri og haturs­fullri orð­ræðu og for­dómum.

„Ekki dæmum við allt okkar frá­bæra í­þrótta­fólk ef einn fellur á lyfja­prófi og ekki reiknum við með því að ef einn svindlar að þá geri það allir.“

Hann segir að sjálf­sögðu eigi að ræða hlutina og rifja upp en hann gerir þá kröfu að það sé þá gert með upp­lýstum og sann­gjörnum hætti.

„Við skulum þá líka tala um sam­fé­lagið okkar í dag og þá út­skúfun og úti­lokun sem býr þar innra vegna pólitískra skoðana eða sam­fé­lags­stöðu. Ís­land er svo frá­bært land en hér ríkir kerfi, spillt kerfi, kerfi sem sundrar fólki og stéttum. Kerfi sem sí­fellt reynir að endur­skrifa söguna. Sam­fé­lagið væri lík­lega full­kom­lega laust við allt of­beldi og haturs­fulla orð­ræðu ef ekki hefði verið fyrir hel­vítis Bús­á­halda­byltinguna! Það verður fróð­legt að sjá hverju henni verður kennt um næst?“