Ragnar ó­sáttur við Sjálf­stæðis­flokkinn: Af hverju ekki að hækka skatta á þá ríku?

„Skyldi engan undra þótt fylgi gömlu flokkanna hafi minnkað, ó­jöfnuðurinn er slíkur að vart verður við unað lengur,“ segir Ragnar J. Jóhannes­son, eldri borgari, í að­sendri grein á vef Vísis.

Ragnar vísar í ný­legar fréttir, meðal annars frá Argentínu, þess efnis að yfir­völd hafa á­kveðið að leggja auka­skatt á alla sem eiga eignir yfir 300 milljónir króna. Í til­felli Argentínu er um að ræða 3% eigna­skatt á eignir yfir 300 milljónir króna. Er þetta gert til að mæta auknum út­gjöldum vegna CO­VID-19-far­aldursins.

Ragnar furðar sig á því að ekki sé það sama uppi á teningnum hér á landi.

„Ríkis­stjórn Ís­lands hefur aftur á móti lækkað skatta á fólki um 34 milljarða sem hefur svipaða af­komu. Ríkis­stjórn Ís­lands ætlar að hafa annan hátt á, hún ætlar að brúa bilið með milljarða láni sem þarf að greiða á næstu árum og þá með skatt­lagningu á borgarana og fyrir­tæki þ.m.t. ör­yrkja og eldri borgara.“

Í pistli sínum gerir Ragnar um­ræðu í spjall­þættinum Silfur Egils að um­tals­efni. Þar hafi menn verið undrandi á því hve fylgi gömlu flokkana hefði minnkað. Segir Ragnar að það skyldi engan undra þótt fylgi gömlu flokkanna hafi minnkað, ó­jöfnuðurinn sé slíkur að vart verður við unað lengur.

„Það sætti furðu að hér fyrr á árum var Sjálf­stæðis­flokkurinn, flokkur allra stétta, með 42% fylgi en er nú með 20%+. Stjórn flokksins áttar sig ekki á því að fólkið sem skapar verð­mætin þ.e. fólkið sem dregur vagninn er orðið af­huga þessum flokki og öðrum sem hugsa og fram­kvæma eins.“