Ragnar ósáttur: Opna hús fyrir flóttafólk og konur sem eru að ljúka afplánun - „En við eigum bara enn að vera úti“

„Það hefur verið í fjöl­miðlum í vikunni að til standi að taka á leigu tíu hús fyrir flótta­fólk og í síðustu viku var opnað Bata­hús fyrir konur sem eru að ljúka af­plánun en við eigum bara enn að vera úti,“ segir Ragnar Erling Hermannsson, heimilislaus maður í Reykjavík, í samtali við Fréttablaðið í dag.

Ragnar Erling er félagi í Viðmóti, samtökum um mannúðlega vímuefnastefnu á Íslandi, og segir hann ósanngjarnt að heimilislausir séu látnir vera úti í kuldanum á meðan aðrir hópar samfélagsins fá aðstoð.

Ragnar ásamt félögum sínum í Viðmóti hefur krafist þess að opnuð verði að­staða fyrir heimilis­lausa karl­menn í Reykja­vík. Gisti­skýli séu ekki opin á daginn og þá hafi mennirnir engan stað að vera á.

„Í fyrra var opnað úr­ræði fyrir konur og það gengur vel svo ég skil bara ekki af hverju það er ekki hægt að gera það fyrir okkur líka,“ segir Ragnar í samtali við Fréttablaðið í dag og vísar þar til Skjólsins, úr­ræðis fyrir heimilis­lausar konur sem rekið er af Hjálpar­starfi kirkjunnar. Skjólstæðingar geta leitað þangað yfir daginn þegar lokað er í Konukoti.

„Og svo það sé á hreinu þá snýst þetta ekki um að fólkið sem um ræðir sé flótta­fólk eða konur. Ég vil að við tökum á móti flótta­fólki og hælis­leit­endum og veitum þeim skjól, ég vil bara líka fá hjálp, það ætti að vera hægt að hjálpa okkur öllum,“ segir Ragnar í Fréttablaðinu í dag.

Nánar um málið á vef Fréttablaðsins.