Ragnar látinn bíða og þjást á meðan ráð­herra neitar að semja við Klíníkina: „Hæft fólk sem gæti stytt bið­listana“

Ragnar Hilmars­son grunn­skóla­kennari sér ekki fyrir endann á bið eftir hnéa­gerð. Hann undrast að ríkið neiti að skipta við Klíníkina. Bið­listar lengdust mjög í Co­vid. Þetta kemur framí frétt Fréttablaðsins.

Bið Ragnars Hilmars­sonar grunn­skóla­kennara eftir lið­skiptum á hné lengist stöðugt og á meðan undrast hann á því að ríkið neiti að skipta við Klíníkina Ár­múla en skurð­læknar þar hafa í­trekað gefið fram að þeir eru til­búnir að hjálpa til við að stytta bið­lista. Ís­lenska ríkið hefur hins vegar í gegnum tíðina verið til­búið að senda fólk freka er­lendis í að­gerð sem kostar skatt­greið­endur mun meira.

Ragnar hitti lækni í febrúar 2021. „Hann sagði mér að biðin eftir að­gerð gæti orðið ár en að hún ætti að verða styttri,“ rekur Ragnar. Eftir ár hafi verið sagt að að­gerðin gæti fyrst orðið í sumar eða haust. Á­kveðið var að skipt yrði um vinstra hnéð á Ragnari nú í októ­ber.

„Nú var sagt að þetta yrði ekki fyrr en ein­hvern tímann á næsta ári,“ segir Ragnar. Hann hafi fengið þær skýringar að skortur sé á starfs­fólki á Land­spítalanum.

Ragnar er kvalinn og notar stundum spelkur. Hægra hnéð er einnig lé­legt og er hann farið að verkja í það. Í við­leitni til að stytta biðina freistar hann þess að komast að á sjúkra­húsunum á Akra­nesi og á Akur­eyri.

„Það þýðir að ég þarf bæði að fara í við­tal við lækni á Akur­eyri og lækni á Akra­nesi og það þarf að taka myndir á báðum stöðum – það er engin sam­vinna þarna á milli,“ segir Ragnar og undrast sam­skipta­leysi sjúkra­húsanna sem hafi í för með sér aukinn kostnað og fyrir­höfn.

Kveðst Ragnar hafa frétt að hafi fólk ekki fengið slíka að­gerð innan þriggja mánaða eigi það rétt á að fara til út­landa í að­gerð á kostnað Sjúkra­trygginga Ís­lands. Sé sá kostnaður marg­falt meiri en þær 1,2 milljónir króna sem hann þyrfti að greiða fyrir sömu að­gerð hjá Klíníkinni í Reykja­vík. Ríkið vilji hins vegar ekki greiða fyrir slíkar að­gerðir á Klíníkinni eins og áður hefur komið fram í fréttum.

„Bæklunar­læknirinn er búinn að senda beiðni á Sjúkra­tryggingar,“ segir Ragnar sem kveðst nota mikið af verkja­lyfjum. Hann skilji ekki hví ríkið vilji ekki greiða fyrir að­gerð á Klíníkinni þar sem hægt væri að komast fljótt að með mun minni til­kostnaði fyrir ríkis­sjóð.

„Ég hef rætt við Willum heil­brigðis­ráð­herra. Hann segist vera að vinna í þessu á fullu. Það er afar skrítið að við séum með Klíník og hæft fólk sem gæti stytt bið­listana en þeir séu ekki til­búnir að borga fyrir það en til í að borga fyrir þetta á einka­sjúkra­húsum er­lendis.“

Að sögn Andra Ólafs­sonar, upp­lýsinga­full­trúa á Land­spítalanum, lengdust bið­listar í nánast öllum að­gerða­flokkum gríðar­lega í Co­vid. Ekki hafi tekist nægi­lega vel að stytta listana.

„Þegar verið er að vinna bið­listana niður ræður bráð­leiki för. Þá hefur lífs­ógnandi á­stand meiri for­gang enn annað,“ segir Andri.