Ragnar lætur hjólreiðamenn í Garðabæ heyra það

Ragnar Önundarson, fyrrverandi bankastjóri, naut veðurblíðunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær eins og eflaust margir aðrir. Ragnar er þó ósáttur við eitt og það er tillitsleysi hjólreiðamanna.

Ragnar tekur til máls í Facebook-hópi íbúa í Garðabæ þar sem hann segir:

„Gekk um göngu- og hjólreiðastíga bæjarins í góða veðrinu í dag. ENGINN sem fór hjólandi fram úr mér hringdi bjöllu ! Þeir voru þó æði margir. Ég fór að líta eftir því hvort hjólin væru með bjöllu, yfirleitt var svo ekki. Sjálfhverfastir voru þeir sem voru á ,,racer” keppnishjólum, þeir geystust framhjá á hraða sem örugglega mundi valda alvarlegu slysi ef til áreksturs kæmi við gangandi fólk,“ segir hann.

Hann bætir svo við að í skíðabrekkunum sé ábyrgðin þeirra sem eru ofar og það sama ætti að eiga við á göngustígum.

Færsla Ragnars hefur vakið talsverða athygli og taka margir undir. Þó benda sumir á að hjólreiðamenn séu æði misjafnir, sumir séu til fyrirmyndar á meðan aðrir þurfi að líta í eigin barm. Þá benda sumir á að bjöllurnar séu til einskis ef gangandi vegfarendur eru með heyrnartól í eyrunum eins og stundum er.

Einn hjólreiðamaður sem ekur um á „racer-hjóli“ eins og Ragnar kvartar undan segist vera með bjöllu á sínu hjóli. Hann bendir á að sumum bregði mjög þegar bjöllunni er hringt og stígur til hliðar.

„Jafnvel þó að ég hringi henni snemma. Það stoppar mig þó ekki í að nota bjölluna en ég bara finn til með fólki sem hrekkur svona illa við. Yfirleitt er fólk bara í sínum hugarheimi eða í djúpum samræðum þegar það er að ganga og truflast mjög af svona áreiti. Verstir eru þeir sem eru að ganga eða hlaupa og eru með heyrnartól í botni í eyrunum og heyra ekki neitt,“ segir hann og bætir við að best sé að hafa stígana sem mest aðskilda. Það sé alveg pláss fyrir alla.