Ragnar hristir hausinn: Svona græða fjár­festarnir – „Fólkið þarf að taka til sinna ráða“

Ragnar Þór Ingólfs­son, for­maður VR, segir að fólkið í landinu þurfi að taka til sinna ráða og krefjast þess að sjóð­fé­lagar, eig­endur líf­eyris­sjóðanna, kjósi í stjórnir sjóðanna í stað at­vinnu­lífsins.

Ragnar gerir þetta að um­tals­efni í pistli á Face­book-síðu sinni og vísar í út­tekt Við­skipta­ráðs þar sem meðal annars er farið yfir mikil­vægi þess að líf­eyris­sjóðir komi að inn­viða­fjár­festingum. Þar sé bent á lönd eins og Kanada og Ástralíu í þeim efnum.

„Af öllu sem upp er talið meðal fjár­festinga­kosta fyrir líf­eyris­sjóði er ekki einu orði minnst á í­búðar­hús­næði. Eða þá stað­reynd að inn­viða­fjár­festing í í­búðar­hús­næði og hús­næðis­fé­lögum er regla frekar en undan­tekning hjá líf­eyris­sjóðum í Evrópu, sér­stak­lega í þeim löndum sem við berum okkur einna helst saman við.“

Ragnar spyr hvort það sé með­vitað gert að undan­skilja einn mikil­vægasta inn­viðinn í um­ræddri út­tekt, út­tekt sem telur upp sæ­streng og raf­línur.

„Fyrir liggur að í upp­siglingu er mjög al­var­legur hús­næðis­skortur með öllum þeim ömur­legu sam­fé­lags­legu á­hrifum sem það hefur í för með sér. En rétt er að geta þess að um 7.000 manns búa nú þegar í ó­leyfis­í­búðum, eða ó­viðunnandi hús­næði.“

Ragnar segir ljóst að í upp­siglingu sé mikill þrýstingur á að líf­eyris­sjóðir fjár­magni gríðar­lega á­hættu­samar fram­kvæmdir. „Fram­kvæmdir eins og sæ­streng sem gefur hags­muna­hópum sem fjár­fest hafa í jörðum með virkjana­leyfum tæki­færi til að tengjast inn á risa­stóran raf­orku­markað.“

Ragnar segir að þá sé gott að láta líf­eyris­sjóði al­mennings taka þá miklu á­hættu að fjár­magna sæ­streng og raf­línu­kerfið sem þarf til.

„En fyrir Við­skipta­ráð er hús­næðis­skortur lík­lega hið besta mál. Þannig heldur hús­næðis­verð á­fram að hækka og fjár­festar græða, leiga hækkar, og fjár­mála­stofnanir tryggja veð­rétt. Það er ljóst að fólkið í landinu þarf að taka til sinna ráða og krefjast þess að sjóð­fé­lagar/eig­endur kjósi stjórnir líf­eyris­sjóða í stað at­vinnu­lífsins. Það hlýtur að verða stóra krafan í komandi Al­þingis­kosningum.“

Sæstrengur í stað íbúða? Í úttekt Viðskiptaráðs er farið yfir mikilvægi þess að lífeyrissjóðir komi að...

Posted by Ragnar Þór Ingólfsson on Fimmtudagur, 4. febrúar 2021