Ragnar heldur í vonina um fá þak yfir höfuðið: „Það virðist ekki verið hlustað á okkur“

„Staðan er bara sú að við erum ekki enn þá með neitt þak yfir höfuðið á daginn,“ segir Ragnar Er­ling Her­­manns­­son, heimilis­­laus maður í Reykja­­vík og fé­lagi í Við­­móti, sam­tökum um mann­úð­­lega vímu­efna­­stefnu á Ís­landi.

Þetta kemur fram í við­tali Frétta­blaðsinsvið Ragnar.

Við­­mót hefur undan­farið barist fyrir því að opnað verði hús­­næði í Reykja­­vík þar sem heimilis­lausir karlar geta verið yfir daginn en gisti­­skýli borgarinnar eru lokuð á milli klukkan tíu á morgnana og fimm seinni­partinn.

„Það virðist ekki verið hlustað á okkur og enn síður brugðist við,“ segir Ragnar. Á fundi Vel­­ferðar­ráðs borgarinnar var lagt til að út­vegað yrði neyðar­hús­­næði fyrir heimilis­­lausa karl­­menn í borginni. Lagt var til að vel­­ferðar­ráð sam­þykkti að verja alls 155 milljónum króna til rekstursins. Í fundar­­gerð segir að kostnaður rúmist ekki innan fjár­heimilda.

„Við höfum ekkert heyrt af neinu en höldum í vonina,“ segir Ragnar.