Ragnar segir ungt fólk þurfa reynslu en Frið­jón svarar: „Annað en sá sem varð 31 árs banka­stjóri“

Ragnar Önundar­son deilir frétt Hring­brautar um Þor­björgu Helgu og um­mæli hennar um Sjálf­stæðis­flokksins. Ljóst er að honum þykir ekki mikið til koma og segir hann ungt fólk eiga að afla sér starfs-og lífs­reynslu. Frið­jón Frið­jóns­son, al­manna­tengill, rifjar það upp þegar Ragnar varð banka­stjóri 31 árs.

„Sjálf­stæðis­flokkurinn er enn í mesta basli í sínum kvenna­málum, al­gjör hrak­falla­bálkur. Nú tjáir þessi kona sig, en hún er ein þeirra sem fóru erindis­leysu fyrir flokkinn. Það sem flokkurinn þarf að gera er að hætta hégóma­skapnum og snúa sér aftur að pólitík. Í eina tíð aug­lýstu menn bíla með því að mynda létt­klæddar ungar og glæsi­legar konur sitjandi á húddinu, í von um að ná að draga augu karl­manna að bílnum.

Að beita þessari að­ferð á stjórn­mála­flokk á 21. öldinni er vægast sagt undar­leg tíma­skekkja. Frændur okkar í Skandinavíu kjósa ekki flokka eftir út­liti for­ystu­fólksins, ekki þarf annað en líta á myndir af for­sætis­ráð­herrunum þeirra til að sann­færast um þetta. Unga fólkið sem ver miklum hluta af tíma sínum fyrir framan spegilinn ætti að afla sér starfs- og lífs­reynslu áður en það biður um æðsta frama. Kominn er tími á upp­gjör við aug­lýsinga- og yfir­borðs­mennskuna.“

Frið­jón Frið­jóns­son rifjar það upp hvað Ragnar varð ungur að banka­stjóra. „Ragnari Önundar­syni er upp­sigað við ungt fólk, telur það þurfa "afla sér starfs- og lífs­reynslu áður en það biður um æðsta frama". Annað en sá sem varð 31 árs banka­stjóri. Unga fólkið nú­til­dags!“

Sjálfstæðisflokkurinn er enn í mesta basli í sínum kvennamálum, algjör hrakfallabálkur. Nú tjáir þessi kona sig, en hún...

Posted by Ragnar Önundarson on Friday, 12 February 2021