Ragnar Freyr um að­gerðirnar: „Tíma­bært að við endur­hugsum okkar nálgun“

Ragnar Freyr Ingvars­­son, fyrr­verandi yfir­­­læknir Co­vid-göngu­­deildarinnar, segir tíma­bært að Ís­lendingar endur­hugsi að­gerðir sínar gagn­vat veirunni.

„Þær tak­markanir sem lagðar eru á - munu ó­lík­lega skila til­ætluðum árangri, enda er far­aldurinn mestur meðal barna, ung­linga og ungra full­orðinna í mennta­skóla og há­skóla. Og lík­lega mun út­breiddari en við höldum,“ skrifar Ragnar.

„Víða er­lendis verið að endur­skoða nálgun í ljósi breyttra að­stæðna. Víða í kringum okkur er verið að skil­greina við­brögð upp á nýtt í ljósi nýrra for­sendna, m.a. á hinum Norður­löndunum. Verið er að endur­hugsa skimanir, sótt­kví, við­brögð al­mennings og á heil­brigðis­stofnunum. Tíma­bært er að við gerum slíkt hið sama,“ bætir hann við.

Hann segir Ó­míkron-af­brigðið hafa náð heims­yfir­ráðum á sex vikum og ger­breytt öllu. Co­vid er gjör­ó­líkur sjúk­dómur en við þekktum fyrir nokkrum vikum.

„Mun fleiri smitast, en mun færri leggjast inn á sjúkra­hús. Færri leggjast inn vegna CO­VID, þó nokkrir leggjast inn með CO­VID. Sára­fáir enda á gjör­gæslu. Inn­lagnar­tíðni vegna Omikron á Ís­landi er lægri en í Dan­mörku og marg­falt lægri en af Delta af­brigði veirunnar.

Og þetta er ekki bara til­finning, þetta er stutt af rann­sóknum,“ skrifar Ragnar.

Fyrir meira en viku síðan birtist í fjöl­miðlum niður­stöður spá­líkans sem hefur verið lagt til grund­vallar stórra á­kvarðana. Kallað var eftir út­göngu­banni í sam­fé­laginu. Á föstu­dag voru settar fram nýjar tak­markanir byggðar á þessari spá. Ragnar birtir mynd af spánni og segir Ís­land vera fyrir neðan bjart­sýnustu spár.