Ragnar Freyr Ingvarsson, sérfræðingur í gigtar- og lyflækningum og umsjónarlæknir COVID-19 göngudeildarinnar, tekur undir orð Björns Zoega, forstjóra Karólínska sjúkrahússins í Stokkhólmi, þess efnis að hlusta þurfi á raddir fólksins á gólfinu.
„Þessi umræða þarf að halda áfram! Hún er mikilvæg!,“ segir Ragnar Freyr í pistli á Facebook-síðu sinni. Þar deilir hann frétt RÚV þar sem fjallað var um erindi Björns á fundi sænsk-íslenska viðskiptaráðsins í gærmorgun.
Ragnar hefur verið nokkuð gagnrýninn á stefnu stjórnvalda vegna málefna Landspítalans. Fjallaði Hringbraut til dæmis um pistil hans á dögunum þar sem hann gagnrýndi það að fjöldi starfsmanna á Landspítalanum hefði stóraukist á undanförnum árum en framleiðni að sama skapi minnkað. „Við gerum minna! Minna!“ sagði hann meðal annars.
„Það er mikilvægt að hlúð sé að Landspítala og þeirri starfsemi sem þar fer fram. Það er þjóðaröryggismál og heilbrigðismál,“ segir Ragnar í pistli sem hann birti í gær.
Heilbrigðisráðuneytið kynnti skýrslu í októbermánuði þar sem framleiðni og gæði heilbrigðisþjónustu voru meðal annars skoðuð. Ragnar segir að rýna þurfi í þessa skýrslu ráðuneytisins og kannski hlusta nánar á hvaða aðgerðir skiluðu árangri á Karólínska sjúkrahúsinu þar sem Björn Zoega er forstjóri.
„Orð hans, að hlusta þarf á raddir fólksins á gólfinu - hljóma eins og skynsamleg ráð. Það hafa margar góðar hugmyndir sprottið upp úr gróskunni hjá þeim sem starfa beint við að sinna sjúklingum. Ætli COVID göngudeildin sé ekki bæði nýlegasta og nærtækasta dæmið. Og sú hugmynd hefur skipt sköpum í þessum faraldri,“ segir Ragnar og bætir við að göngudeildin hafi orðið til með samvinnu lækna og hjúkrunarfræðinga sem unnu beint við að sinna sjúklingum með COVID-19 á miklum óvissutímum í fyrstu bylgju þessa heimsfaraldurs.
„Það var mikið happaspor að treysta okkur fyrir ákvörðunum á þeim erfiðu tímum og kannski ætta að hlýða á raddir okkar miklu oftar. Það er alltént mín skoðun,“ segir hann.