Ragnar Freyr: „Netníðingar eru óttaleg plága!“ – Pabbi kom til varnar

„Skrif föður míns vöktu nokkra athygli! Netníðingar eru óttaleg plága!“ Þetta segir Ragnar Freyr Ingvarsson, sérfræðingur í gigtar- og lyflækningum og umsjónarlæknir COVID-19 göngudeildarinnar, á Facebook-síðu sinni.
Ragnar vakti þar athygli á skrifum föður hans, Ingvars Sigurgeirssonar, um helgina þar sem hann leitaði ráða vegna býsna ljótra orða sem viðhöfð voru um Ragnar. Mannlíf fjallaði meðal annars um málið um helgina.

Ragnar Freyr liggur sjaldnast á skoðunum sínum og hefur hann tjáð sig reglulega um aðgerðir yfirvalda í COVID-faraldrinum. Í færslu sinni sagði Ingvar:

„Nú þarf ég ráð, kæru vinir. Hvernig mynduð þið bregðast við níði eins og þessu?

Birgir Karl Ragnarsson:

Ragnar freyr ingvarsson Ljóti auminginn sem þú ert ! Eineltisræfill og viđbjóđur. Karma mun ná þér ömurlega afsökun fyrir manneskju !!

Már Jóhannsson:

Þú ert ógeðslegur morðingi, ég veit að þú leikur þér að því að eytra fyrir fólki, þú ert hættulegur umhverfi þínu!“

Fjölmargir skrifuðu athugasemdir við færslu Ragnars Freys og voru flestir á því að tilkynna ætti svona lagað til lögreglu. Hjálmar Árnason, fyrrverandi þingmaður og skólameistari, hvatti hann til að gera ekki neitt: „Kæri Ingvar. Þessi ömurlegu orð dæma sig sjálf. Best að bregðast við með engu. Fyrir alla muni ekki hampa höfundunum með því að svara.“

Annar þekktur skólameistari, Sigurbjörn Árni Arngrímsson, kom með skemmtilegt innlegg: „Í mínum skóla myndi ég hringja í mömmur svona mannvitsbrekkna. Ég geri hins vegar ráð fyrir að þessir teljist fullorðnir og mömmurnar löngu búnar að gefast upp á þeim. Annað hvort að gera ekki neitt eða tilkynna netníð.“