Ragnar Freyr með ráð til óbólu­settra: „Fáið ykkur ó­dýrustu tryggingu allra tíma“

Ragnar Reyr Ingvars­son, fyrr­verandi yfir­læknir Co­vid-göngu­deildarinnar og Læknirinn í eld­húsinu, hvetur alla sem hafa ekki læknis­fræði­lega á­stæðu til að láta ekki bólu­setja sig til þess að fá sér „ó­dýrustu tryggingu allra tíma.“

Þetta sagði Ragnar í síð­degis­þætti K100 í gær en þar fagnaði hann árangri Ís­lands í bar­áttunni við Co­vid-19 sem er að hans mati al­gjör­lega bólu­setningum að þakka.

Ragnar fór um víðan völl í við­talinu en hann tók meðal annars undir hug­mynd Þór­ólfs Guðna­sonar sótt­varna­læknis að þrí­bólu­settir verði undan­þegnir sótt­kví.

„Það er nóg af fólki enn þá sem er einungis tví­bólu­sett og það er leiðin­legt að segja að það eru enn um 25 þúsund manns sem eru óbólu­settir með öllu. Full­orðnir.“ sagði Ragnar á K100.

Ragnar er einnig þekktur sem læknirinn í eld­húsinu og hvatti hann Ís­lendinga sem þurfa að fara í sótt­kví til þess að gera vel við sig og elda góðan mat.