Ragnar Árnason jarðar Borgarlínuna og ýtir henni nánast út af borðinu

Ragnar Árnason, prófessor í hagfræði, jarðar Borgarlínuna og ýtir henni nánast út af borðinu í afar fróðlegu viðtali við Jón G. Ragnar hefur skrifað tvær mjög athyglisverðar greinar í Morgunblaðið að undanförnu um Borgarlínuna. Hann segir að Borgarlínan hafi neikvætt núvirði og sé engan veginn góður fjárfestingarkostur og verði rekin með stórtapi; tapi sem lendi á skattgreiðendum og bíleigendum - sem raunar verði þrengt verulega að enda ruðningsáhrifin mikil á núverandi gatnakerfi sem minnkar fyrir almenna bílaumferð. Hann segir Borgarlínuna hvorki borga sig sem sjálfstæð fárfesting né þjóðhagslega með kostnaðar-ábata greiningu.

Hér má sjá viðtal Jóns G. við Ragnar.