Óhætt er að segja að fréttaflutningur Fréttablaðsins af málefnum heildsölunnar Lyru hafi vakið athygli.
Fyrirtækið, sem sérhæfir sig í sölu á rannsókna- og efnagreiningatækjum og rekstrarvörum til efnagreininga, velti 4.250 milljónum króna í fyrra og skilaði 1.954 milljóna króna hagnaði. Þennan gríðarlega hagnað má rekja til neyðarástands vegna kórónuveirufaraldursins en Landspítalinn er langstærsti viðskiptavinur fyrirtækisins.
Þurfti spítalinn að hafa hraðar hendur til að kaupa veirugreiningartæki og efnum til prófana þegar kórónuveiran var sem mest áberandi. Ekki fór fram útboð á innkaupum Landspítalans sökum neyðarástandsins í heimsfaraldrinum.
Margir eru ósáttir við forsvarsmenn fyrirtækisins, feðgin sem ákváðu að skipta með sér allt að 750 milljóna króna arði vegna þessa góða árangurs. Ragnar Freyr Ingvarsson, læknir og fyrrverandi yfirlæknir Covid-göngudeildarinnar, gerir málið að umtalsefni á Facebook-síðu sinni.
„Þetta er ógeðslegt arðrán hjá þessu fyrirtæki - Lyra. Ég treysti því að LSH fari fram á endurgreiðslur frá fyrirtækinu. Hverjir eru eiginlega eigendur að þessu fyrirtæki,“ spyr Ragnar.
Einn sem skrifar athugasemd við færslu Ragnars er þeirrar skoðunar að þetta sýni hvað spítalinn er illa rekinn, ekkert annað. Ragnar segir að fleira komi þó til.
„Það er vissulega ótrúlegt að á tveimur árum hafi tilboða aldrei verið leitað. En það breytir engu um svona tækifærismennsku. Og það í miðjum heimsfaraldri!“