Lífið er lag kl. 20.30 í kvöld
Þátturinn Lífið er lag verður á dagskrá Hringbrautar kl. 20.30 í kvöld en þetta er 3. þáttur af 12 á þessu vormisseri. Rætt verður við Pálma V. Jónsson yfirlækni á Öldrunarlækningadeild LSH um algengustu sjúkdóma sem hrjá fólk þegar aldurinn færist yfir.
Þá verður rætt við grínleikarann Örn Árnason um nýtt stykki sem hann er að byrja með í Þjóðleikhúskjallaranum og heitir „Shit – ég er sextugur“.
Síðari hluti þáttarins verður helgaður minningu Ragnars Bjarnasonar og þá verður sýnt frá Stórtónleikum Björgvins Halldórssonar í Cirkus í Kaupmannahöfn sem fram fóru fyrir fullu húsi árið 2008. Sýnt verður frá innkomu Ragga á svið þar sem þeir Björgvin syngja lagið „Barn“ en þetta efni hefur ekki áður birst sjónvarpsáhorfendum á Íslandi.
Í framhaldi verður viðtal Sigurðar K. Kolbeinssonar við Ragga Bjarna endursýnt en það var áður á dagskrá Hringbrautar í nóvember 2018. Kvikmyndatöku annaðist Friðþjófur Helgason.