Ragga segir fólki að hlusta ekki á þessa útbreiddu mýtu um mat

Ragn­hildur Þórðar­dóttir, sál­fræðingur og einka­þjálfari sem er oft betur þekkt sem Ragga Nagli, skrifar um útbreidda mýtu um mataræði í færslu sem birtist á Facebook-síðu hennar.

„Ekki borða eftir klukkan átta á kvöldin. Hversu oft hefurðu lesið þessa setningu í heilsuráðleggingum eða séð Instagramm póst frá áhrifavaldi sem lætur ekki örðu inn í túlann eftir klukkan átta. Því allt sem kemur inn í líkamann breytist í fitu með óútskýrðum mekanisma. En það fylgja yfirleitt ekki nein vísindi af hverju ekki. Því það slökknar á efnaskiptunum klukkan sjö núll eitt.“ segir Ragga.

Hún segir að heildarhitaeiningar dagsins skipti meira máli en tímasetning máltíða. Ef maður planar daginn sinn þannig að maður eigi innistæðu fyrir smá kvöldsnarli yfir tíufréttunum þá sé það í lagi.

„Ef þú færð skápaóeirð í sinnið eftir kvöldmat og vilt smá ást og umhyggju frá Nóa Siríus þá mun þetta rómantíska móment með molanum klukkan hálfníu vera árangursríkara samband við mat en að halda í sér eins og sex ára í pissuspreng til laugardags og éta þá súkkulaðifabrikkur landsins út á guð og gaddinn.“ segir hún.

„Þessi regla getur verið gagnleg til að forða okkur frá að borða of mikið þann daginn, eða að við borðum af öðrum ástæðum en svengd.“ bætir Ragga við. „Þegar matur er orðinn dægrardvöl, vinur og hækja.“

Ragga segir að þegar við fylgjum tilviljanakenndum reglum og klukku um hvenær við „megum“ borða missum við tengsl við líkamleg merki um svengd og seddu.

„Við hættum að treysta okkur sjálfum og þróum óheilbrigt samband við mat.“ segir hún.

Í færslu sinni tekur hún þessi þrjú dæmi:

„Ekki lamast vinstra megin í matarkvíða ef þú kemur seint heim úr vinnu og þarft að löðra í þig kvöldmat klukkan átta fimmtán.

Ekki fá sektarkennd og draga fram gapastokkinn ef þú ert svangur rétt fyrir svefn og puðrar í þig jógúrtdollu.

Ekki fá heilablóðfall af hræðslu ef þér boðið út að borða eða í matarboð klukkan átta.

Hlustaðu á líkamann og gefðu honum ást og umhyggju. “

Ragga endar síðan skirfin á þessum orðum:

„Smotterís snarl á kvöldin mun ekki spika þig eins og aligæs í foie gras verksmiðju.

Lífið er nógu flókið. Ekki gera næringuna að stjarneðlisfræði.“