Lífskúnstnerinn Ragnhildur Þórðardóttir, best þekkt sem Ragga Nagli, sem búsett er í Kaupmannahöfn í Danmörku kemur Píratanum Lenyu Rún til varnar í ítarlegum pistli á Facebook. Lenya, sem er Kúrdi, hefur orðið fyrir töluverðum kynþáttafordómum hér á landi.
Ragga segir að hún hafi orðið fyrir aðkasti vegna uppruna síns í Kaupmannahöfn. Hún og eiginmaður hennar venja komur sínar í menningarhús Færeyinga, Grænlendinga og Íslendinga. „Eins er kirkja Íslendinga í Kaupmannahöfn. Rétt eins og bænahús múslima verður á Suðurlandsbraut. Samkomustaður til að hitta landa sína, og iðka sína trú,“ segir hún.
„Húsið er á besta stað í Kaupmannahöfn og enginn Dani lýsti yfir óumbeðnu áliti í kommentakerfum fjölmiðla um að Íslendingar væru upp til hópa óþjóðalýður sem mergsýgur kerfið.“
Þá segist hún viss um að Íslendingar myndu stórlega móðgast ef hún yrði kölluð „útlendingadrusla“ í Danmörku. „En samtímis horfum við uppá framúrskarandi klára og duglega konu ataða auri fyrir það eitt að vera af kúrdískum uppruna sest á Alþingi Íslendinga.“