Ragga lét útvarpsmann heyra það eftir viðtal – „MJÖG óviðeigandi spurning“

Ragnhildur Þórðardóttir, sálfræðingur og líkamsræktarfrömuður, segist hafa látið útvarpsmann heyra það þegar hann bar upp mjög óviðeigandi spurningu í viðtali sem hann tók við hana.

Ragnhildur, sem er betur þekkt undir nafninu Ragga nagli, segir frá þessu í færslu á Facebook-síðu sinni en spurningin var þessi: „Hvenær ætlarðu eiginlega að eignast börn?“

Óviðeigandi

Ragga segir að útvarpsmaðurinn hafi spurt hana hvort hún væri ein af þessum konum sem setur starfsframann í forgang fyrir barneignum. Nú væri hún komin yfir fertugt og þyrfti að fara að gera eitthvað í þessu.

„Þessi hörmung hraut af vörum útvarpsmanns í beinni útsendingu þegar Naglinn var í viðtali fyrir nokkrum árum. Eftir að slökkt var á hljóðnemunum lét Naglinn útvarpsmanninn vita að sér hefði fundist þetta MJÖG óviðeigandi spurning.“

Ragga segir að „naglabóndinn“ sem er fjórum árum eldri fái þessa spurningu sárasjaldan.

„Það virðist vera skotleyfi á konur yfir þrítugt að hnýsast í þeirra einkamál... og jafnvel inn í svefnherbergið í þessu tilfelli. Ef þú Googlar Jennifer Aniston koma upp fleiri, fleiri blaðsíður af leitarniðurstöðum með vangaveltum úr viðtölum við hana um hvort hún ætli að eignast börn. Hvenær. Hvernig. Með hverjum,“ segir Ragga sem bendir á að Jennifer sé fædd árið 1969 og sé því 53 ára gömul.

„Matthew Perry sem lék Chandler er einnig fæddur 1969. Hann á engin börn.

Ef þú Googlar nafnið hans og börn, þá koma upp örfáar tilvísanir í viðtöl þar sem hann er spurður aðallega út í ástarlíf sitt en nánast aldrei um barneignaplön hans.“

Áslaug Arna fékk spurninguna

Ragga nefnir fleiri dæmi, til dæmis af Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, 32 ára ráðherra, sem var nýlega spurð út í barneignarplön sín af karlkyns blaðamanni. Minnti hann hana einnig á að tíminn væri nú ekki að vinna með henni.

„Við konur þurfum ekki hrútskýringu á að líkamsklukkan tifar hvað varðar barneignir. Við erum velflestar upplýstar um eigin líffræði. Með því að spyrja slíkra spurninga gefurðu þér að allt sé í gúddí í skrokknum, en getur verið að vekja upp erfiðar tilfinningar og lífsreynslu.

Sumt fólk hefur glímt við frjósemisvanda og upplifað vonbrigði og sárar tilfinningar og gefist upp eftir mislukkaðar tilraunir,“ segir Ragga og bætir við að aðrir hafi erfðagalla sem þeir vilja ekki koma niður á komandi kynslóðir. Þeir kjósi því barnleysi meðvitað.

„Sumar konur hafa þurft að láta fjarlægja leg eða eggjastokka útaf krabbameini eða öðrum sjúkdómum, og því ekki færar að ganga með börn. Sumar hafa misst fóstur eða þurft að fæða andvana börn, og geta ekki hugsað sér að ganga í gegnum slíka reynslu aftur.

Sumt fólk langar einfaldlega ekki að eignast börn og kjósa barnleysi af eigin vilja.

Ekki af því þeim sé illa við börn. Það geta verið ástæður eins og fjárhagslega óhagkvæmt, umhverfissjónarmið, pólítík, ástand heimsins, starfsframinn, tímafrelsi eða hvað annað,“ segir Ragga sem endar færsluna á þessum orðum:

„Þú þarft aldrei ástæðu til að spyrja EKKI konu um barnaplön hennar, hvort sem það er að eignast fyrsta barn eða af hverju hún á ekki barn númer tvö eða þrjú.

Af því.....Þér kemur það ekki við.“