Rafs­kútu­leiga sögð skorta manna­siði: „Ömur­legt og hættu­legt fyrir fatlað fólk“

Raf­magns­hlaupa­hjól á vegum Wind sem borgar­búar hafa ný­lega séð á víð og dreif um höfuð­borgar­svæðið eru sögð geta verið stór­hættu­leg fyrir fatlað fólk þar sem þau eru gjarnan skilin eftir á miðjum göngu­stígum, að því er virðist, af sjálfum þjónustu­aðilanum.

Um­ræða um hlaupa­hjólin hefur farið mikinn í ís­lenska Twitter sam­fé­laginu. Þar er Theo­dór Ingi fyrstur til þess að benda á það hvernig hjólin er skilin eftir en hann birtir mynd af Sel­tjarnar­nesi, skammt frá Eiðis­torgi þar sem má sjá að hjólin eru í göngu­leið.

Inga Björk Margrétar Bjarna­dóttir, sem vekur reglu­lega at­hygli fyrir að vekja máls á réttinda­málum fatlaðra, tekur boltann frá Theo­dóri og segir ömur­legt að sjá það hvernig hjólin séu skilin eftir.

„Þetta er ömur­legt og hættu­legt fyrir fatlað fólk. Blindir og sjón­skertir í fall­hættu og fólk sem kemst ekki fram­hjá vegna þess að það er í hjóla­stól eða með göngu­grind þarf að fara út á götu, og keyra eftir henni með­fram um­ferðinni.“

Theo­dór tekur sig þá til og sendir Wind rafs­kútu­leigunni skila­boð á ensku á sam­fé­lags­miðlinum. Biðlar hann til þeirra að senda starfs­mönnum sínum línu og fá þá til að koma raf­hjólunum fyrir á betri máta fyrir gangandi veg­far­endur.
Gísli Marteinn Baldurs­son, sjón­varps­maður og skipu­lags­mála­mógúll blandar sér þá í um­ræðuna. Kallar hann eftir því að Dagur B. Eggerts­son, borgar­stjóri og Sigur­borg Ósk Haralds­dóttir, for­maður skipu­lags-og sam­göngu­ráðs borgarinnar, skerist í leikinn.

„Veit ein­hver hvaða fólk sér um þessar Wind rafs­kútur hér á Ís­landi? Elska þessa byltingu, en fólk þarf að kunna manna­siði og @Dagur og @Sigur­borgOsk­þurfa að setja þessum fyrir­tækjum mörk. Er ekki fínt að af­henda þeim nokkur vel stað­sett bíla­stæði fyrir skotturnar?“