„Bara í mínu litla fyrirtæki erum við að tala um að minnsta kosti 20 milljóna tekjutap,“ segir Rafn Valur Alfreðsson, leigutaki Miðfjarðarár. Rafn er afar óhress með þá ákvörðun stjórnvalda að skikka ferðamenn í tvöfalda sýnatöku og sóttkví þar til niðurstaða úr seinni sýnatökunni liggur fyrir.
Morgunblaðið vakti athygli á Facebook-færslu Rafns en í henni sendir hann stjórnvöldum tóninn. Hann segir að hann hafi þurft að afbóka 52 stangir af erlendum veiðimönnum það sem eftir lifir tímabils í Miðfjarðará. Segir hann að þetta hafi hann þurft að gera út af óskiljanlegri ákvörðun misvitrar ríkisstjórnar.
„Í raun líður mér eins og ég hafi alveg verið að klára maraþonhlaup og svo hafi einhver vitleysingur komið og sparkað mig niður 500 metra frá endamarki,“ segir í færslunni sem birt er á vef Morgunblaðsins.
Hann segir að í allt sumar hafi hann verið með fullt hús af fólki, einkum erlenda veiðimenn sem eru tilbúnir að leggja mikið á sig til að veiða í ánni á hverju sumri. Flestir séu búnir að fara í próf vegna kórónuveirunnar og fari svo í annað próf þegar þeir koma til Íslands. Þeir ættu því að vera eins öruggir ferðamenn og hægt er að fá.
„Ótti lélegra stjórnmálamanna við að gera mistök er að fara að verða okkur dýr,“ segir hann og nefnir 20 milljóna tekjutap í hans fyrirtæki. Þá nefnir hann tekjumissi fyrir leiðsögumenn, matreiðslumenn og starfsfólk í veiðihúsi. „Þá er ótalið aðrar afleiddar tekjur t.d. bílstjóra, hótel, Icelandair og veitingastaðir.“
Rafn segir að hann myndi skilja þessa ákvörðun ef það væru 5-10 manns á sjúkrahúsi og annað eins á gjörgæslu og tilfinningin væri sú að við værum að missa tökin á útbreiðslu veirunnar. Bendir hann á að alla síðustu viku hafi 28 tilfelli greinst, einn sé á sjúkrahúsi og enginn á gjörgæslu.
„Þessi ríkisstjórn er galin og ákvörðunin er tekin af fólki sem fær útborgað hvort sem hingað koma ferðamenn eða ekki, hvort sem það veiðist loðna eða ekki, sama hvað gerist þá borgum við launin þeirra. Þetta lið er líka með ein bestu lífeyrisréttindi sem þekkist í þessari veröld og við borgum.“