Sólrún Diego, Markaðsstjóri barnafataverslananna Bíum bíum og Von verslun, hefur gefið fylgjendum sínum sérstakt jólaráð.
Ráð Sólrúnar varðar það hvernig hún skipuleggur sig í innkaupum fyrir jólin.
„Mér finnst gott að dreifa kostnaði og álagi fyrir jólin og byrja að kaupa frá jólasveininum í september,“ sagði Sólrún á Instagram síðu sinni.
Hún kaupir allar jólagjafir í október og nóvember. Í desember fer hún eingöngu í matarinnkaup. Það er kannski fullseint að gefa fólki þetta ráð núna fyrir þessi jól, en eflaust er gott að hafa þetta í huga fyrir þau næstu.
Auk þess opinberaði hún nokkrar spennandi jólauppskriftir, en hægt er að lesa um þær á vef Fréttablaðsins.