Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra og þingmaður, veltir fyrir sér þeirri tækniþróun sem er að eiga sér stað, til dæmis með aukinni útbreiðslu svokallaðra QR-kóða.
QR-kóðar eru nokkurs konar strikamerki sem hægt er að geyma gögn á bak við. Með nútímalegum snjallsímum er hægt að skanna kóðann með myndavél símans og opna síðu á vefnum þar sem upplýsingar eru geymdar.
Björn gerir málið að umtalsefni á heimasíðu sinni, Bjorn.is, en Norrænir músíkdagar hafa verið haldnir hér á landi að undanförnu. Segir Björn að þar hittist tónskáld sem bera saman bækur sínar og hlusta á tónlist sem flutt er víða um borgina, til dæmis í Húsdýragarðinum.
„Það vakti athygli, að minnsta kosti þeirra sem eldri eru, að hvergi var á tónleikum lagt fram neitt blað um efni þeirra, flytjendur eða kynningu á tónskáldum. Þess í stað var bent á Qr kóða sem límdur var á vegg við dyrnar inn í tónleikasalinn,“ segir BJörn sem bendir á að tónleikagestir hafi skannað kóðann eða strikamerkið með appi í síma sínum og lesið tónleikadagskrána á skjá símans.
„Nú vaknar spurning um það hvernig vitneskjan varðveitist um tónleika á Norrænum músikdögum 2022, hvað þar var flutt, af hverjum og undir stjórn hvers. Er þetta hætt að skipta máli? Umsagnir um tónleika birtast ekki lengur reglulega í fjölmiðlum. Myndast gat í tónlistarsöguna? Verða upptökur á öllum tónleikunum ef til vill varðveittar í snjallheiminum og aðgengilegar þar til allrar framtíðar? Getum við notað Qr kóðann til að kalla fram tónleikana og hlusta á þá þegar okkur hentar?“