Pútín sagður hafa komið fjölskyldu sinni í skjól í kjarnorkubyrgi

Vladimír Pútín Rússlandsforseti er sagður hafa flutt fjölskyldu sína í öruggt skjól til Síberíu. Pútín hefur verið harðlega gagnrýndur af Vesturlöndum fyrir innrásina í Úkraínu.

Valery Solovey, fyrrverandi prófessor við MGIMO-skólann í Moskvu, heldur þessu fram og segir að nánustu aðstandendur Pútíns haldi nú til í neðanjarðarbyrgi í Altai-fjöllum í Síberíu. Byrgið var hannað til að þola kjarnorkuárás og er búið öllum helstu þægindum.

Mail Online segir frá þessu en tekur fram að ýmsir hafi sett fyrirvara við kenningar og fullyrðingar Solovey í gegnum tíðina. Solovey hefur gagnrýnt Pútín nokkuð harðlega í gegnum tíðina og haldið því fram að hann gangi ekki alveg heill til skógar.

Solovey sagði í myndbandi sem hann birti á heimasíðu sinni að Pútín hafi flutt fjölskyldu sína í skjól um helgina. „Í raun er ekki um neðanjarðarbyrgi að ræða, heldur hálfgerða borg sem búin er öllum helstu tækninýjungum,“ segir hann.

Hann segist hafa heimildarmenn úr efstu lögum rússneskrar stjórnsýslu sem halda þessu fram.