Það er ekki á færi allra að kaupa sér Playstation 5-leikjatölvu þó rúmlega hálft ár sé liðið síðan hún kom á markað. Framboðið hefur verið mun minna en eftirspurnin og því hafa þær tölvur sem þó hafa komið selst upp á augabragði.
Costco hér á landi fékk nokkrar vélar til sín í dag en miðað við mynd sem birtist í Facebook-hópnum Costco – Gleði voru þær innan við 30 talsins. Ef marka má umræður í þræðinum voru þær fljótar að klárast – ýmsum vafalaust til lítillar gleði.
Um var að ræða útgáfu vélarinnar með Bluray-spilara og kostaði hún 91.999 krónur. Algengt verð á þessum tölvum í öðrum verslunum hér á landi hefur verið 99.995 krónur og var því um nokkuð gott verð að ræða.
Fréttablaðið sagði frá því í lok maímánaðar að Costco hefði fengið um 30 vélar og seldust þær upp örfáum klukkustundum eftir að þær fóru í sölu.