Tveir menn sem prönguðu „Aladdín lampa“ inn á mann í Indlandi fyrir því sem nemur rúmum 12 milljónum íslenskra króna hafa verið handteknir. Guardian greinir frá þessu ótrúlega máli en mennirnir þóttust meðal annars vera hinn svokallaði andi.
Fórnarlambið heitir Laeek Khan, er starfandi læknir og hafði samband við yfirvöld í Uttar Pradesh héraðinu eftir að hann áttaði sig á því að lampanum fylgdu engir töfrakraftar. Lesendur kannast eflaust við lampann úr þjóðsögunni um Aladdín, sem uppgötvaði andann í lampanum sem birtist þegar hann er nuddaður.
„Kona eins þessara manna var líka viðráðin svindlið. Hún er nú á flótta,“ hefur breska blaðið eftir Amit Rai, lögreglufulltrúa um málið. Mennirnir tveir eru nú í varðhaldi.
Khan hefur lýst því hvernig mennirnir plötuðu hann. Annar hafi þóst vera skyggn og hinn þóst vera hinn meinti andi. Þeir hafi meinað Khan að snerta andann, og sagt honum að það myndi skaða veruna.
Þeir hafi á endanum náð að sannfæra Khan um að kaupa lampann, undir þeim formerkjum að það myndi færa honum langlífi, auðæfi og lukku. „Mennirnir hafa platað aðra einstaklinga með sambærilegum hætti, um milljónir,“ segir lögreglufulltrúinn.