Prestur með skila­boð til for­eldra sem eru að fara ferma: „Fermingin hefur það eina hlut­verk“

Sigur­vin Lárus Jóns­son, prestur við Frí­kirkjuna í Reykja­vík, skrifar um fermingar á Vísi í dag en hann segir mikil­vægt fyrir for­eldra að hafa nokkra hluti í huga .

„Fermingin er tíma­mót í marg­þættum skilningi. Fermingar­árið er tíma­bil rót­tækra breytinga í lífi ung­menna. Við kyn­þroska breytist unga fólkið úr börnum í ung­linga og mörg ung­menni taka út vöxt fermingar­árið. Stærstu breytingarnar sem eiga sér stað eru þó ó­sýni­legar en um og eftir 12 ára aldur fara ung­menni að geta hugsað ó­hlut­bundið og sjálf­stætt, með hætti sem yngri börn ráða ekki við,“ skrifar Sigur­vin.

„Örar breytingar eru erfiðar og ung­lings­árin geta reynst hættu­legur tími. Í til­finninga­róti ung­lings­ára skapast hættan á því að ungt fólk taki rangar á­kvarðanir með líf sitt. Upp­alendur standa því frammi fyrir tveimur val­kostum and­spænis því verk­efni að undir­búa börn sín undir ung­lings­árin og einungis önnur þeirra er fær.“

„Sá fyrri er að leggja þeim lífs­reglurnar með boðum og bönnum. Að segja þeim frá öllu því sem gæti komið fyrir og öllu því sem gæti farið úr­skeiðis í lífi þeirra. Að halda þeim frá lífinu til að tryggja að ekkert komi fyrir. Þegar best lætur skilar sú leið öruggum ung­mennum en hún skilar örugg­lega ung­mennum sem eru hrædd við lífið.“

Sigur­vin segir að seinni kosturinn er að sýna ung­mennum með af­gerandi hætti að þau eru elskuð og að þau til­heyra og treysta því að þau muni það þegar á reynir.

„Ung­menni sem upp­lifa sig elskuð munu taka á­kvarðanir sem eru þeim fyrir bestu og ung­menni sem finna sig til­heyra munu leita eftir að­stoð og stuðningi þegar á þarf að halda.“

„Þar kemur fermingin inn. Fermingin hefur það eina hlut­verk að segja við ung­menni í orði og verki að það sé elskað og að það sé staðið með því í lífinu.“

„Tíma­setningin gæti ekki verið betri. Það er flókið verk­efni að vera manneskja og þegar ung­mennin eru að hefja þá veg­ferð að taka á­byrgð á eigin lífi er blásið til veislu til að fagna því að þau séu til og elska þau í drasl!“

„Það er ást í fermingar­fötum, fermingar­greiðslum, fermingar­mynda­tökum, fermingar­veislum, fermingar­gjöfunum og þeim árnaðar­óskum sem ást­vinir miðla til unga fólksins. Með fermingunni er lagður grunnur að þeim á­kvörðunum sem unga fólkið stendur frammi fyrir á árunum frá fermingu og fram á full­orðins­ár. Allt þetta um­stang er undir­búningur undir lífið.“

„Þau sem velja að fermast í kirkju fá jafn­framt að heyra að ást­ríkur Guð er með okkur í för á göngunni í gegnum lífið.

Í Frí­kirkjunni í Reykja­vík fermast ung­menni endur­gjalds­laust,“ skrifar Sigur­vin.