Pósturinn hlýtur alþjóðlega gæðavottun

Pósturinn hefur fengið vottun frá International Post Corporation (IPC) en um er að ræða alþjóðlega úttekt á póstflutningi milli landa. Skoðaður er frágangur og vinnsla pósts í því landi sem pakkarnir og bréfin koma frá og í móttökulandinu. Tilgangurinn er að tryggja gæði í póstflutningum.

Selma Grétarsdóttir, gæðastjóri Póstsins, segir slíka úttekt hafa kallað á mikinn undirbúning því markmiðið sé að ná framúrskarandi árangri í vinnslu alþjóðlegs póst. „Fyrir úttektina var farið yfir lista með ríflega 100 spurningum til að meta hvernig Pósturinn stendur að vígi. Fulltrúar frá IPC komu í heimsókn í október. Þeir þættir sem voru undir smásjánni voru meðal annars vinnuskipulag, gæðastjórnun, samskipti við innri viðskiptavini, flugfélög, höndlunaraðila, IPC og aðrar póststjórnir.“

Selma segir að úttekt sem þessi leiði líka í ljós hvað gangi vel. „Í niðurstöðunum eru styrkleikar okkar greindir og þar kemur fram að við höfum á að skipa reynslumiklu starfsfólki og stjórnendum sem eiga það sameiginlegt að vilja gera breytingar til hins betra á vinnustaðnum og sýna ábyrgð í verki. Það telst okkur líka til tekna að við höfum góða yfirsýn yfir það magn sendinga sem þarf að vinna í Póstmiðstöðinni,“ segir Selma og bætir við: „Auk þess fáum við góða einkunn fyrir pakkaflokkarann, Magna, sem var tekinn í notkun árið 2021 til að mæta auknum umsvifum. Einnig eru höfð jákvæð orð um upplýsingaflæði til pósthúsa sem við erum í samstarfi við og rakningarferlið.“

Selma bendir á að ekki sé síður mikilvægt að fá ábendingar um hvar tækifærin liggja. „Við ætlum til að mynda að skoða ferlateikningar og samninga- og skýrslugerð enn betur,“ segir hún og bætir við að nú þegar hafi verið ráðist í þessi verkefni.

Þann 23. febrúar kom í ljós að Pósturinn hefði staðist úttektina með skorið 94,2%. Í mars var svo forstjóra Póstsins, Þórhildi Ólöfu Helgadóttur, send formleg staðfesting á því að Pósturinn fengi vottun IPC sem gildir til ársins 2026. „Það er gleðiefni og nú getum við státað okkur af þessum gæðastimpli á úrvinnslu Póstsins á alþjóðlegum pósti,“ segir Selma enn fremur.