Play týndi tveimur töskum: „Þetta er 560 þúsund krónur sem ég taldi saman í töskunni“

Alda Svan­hvít Gísla­dóttir er vægast sagt ekki sátt við flug­fé­lagið Play. Í sam­tali við Frétta­blaðið segir hún frá því að tvær ferða­töskur hafi týnst og að Play ætli ekki að bæta þeim töskurnar.

Alda var á­samt manni sínum á Tenerife í mánuð og hafði því tvær stórar töskur í för með sér. Hún og maður hennar ferðuðust með öðru pari upp á flug­völl og skráðu töskurnar sínar inn á sama tíma og þau, nema hvað að þau fengu ekki tösku­miða, líkt og hitt parið.

Þau hjónin eru vön að ferðast um allan heim án vand­kvæða, að sögn Öldu og því bjuggust þau ekki við neinum vand­ræðum, enda um beint flug frá Tenerife til Reykja­víkur um að ræða.

En í Kefla­vík var töskurnar hvergi að finna. „Við til­kynnum strax að það séu engar töskur,“ segir Alda við Frétta­blaðið og bætir við: „Í heilan mánuð ætluðu þau að finna þær.“

Alda segist hafa fengið um þrjá­tíu tölvu­pósta síðasta mánuðinn. Í tölvu­póstinum segjast full­trúar Play trúa þeim hjónum og að allt verði gert til að finna töskurnar.

Síðan fá þau hjón skila­boð um að þar sem töskurnar hafi aldrei verið inn­ritaðar sé ekki hægt að leita að þeim og því fá þau töskurnar ekki bættar. „Síðasta boð sem við fáum frá þeim er 150 þúsund króna inn­eign í flug sem sára­bætur vegna þess hversu lengi þetta hefur dregist,“ segir Alda.

Alda segist sjálf hafa reiknað hversu mikil verð­mæti hafi verið í töskunni. „Þetta er 560 þúsund krónur sem ég taldi saman í töskunni,“ segir hún.

Næsta skref hjá þeim hjónum er að fá sér lög­fræðing „vegna þess að við erum orðin svo pirruð yfir þessu og hvernig er komið fram við okkur. Þetta er bara ömur­legt,“ segir Alda.