Flugfélagið Play aflýsti flugi sínu frá Keflavík til Gautaborgar í morgun aðeins hálftíma áður en vélin átti að fara í loftið. Fréttablaðið greinir frá því að fluginu hafi verið aflýst vegna veikinda í áhöfn. Ekki hafi reynst unnt að manna áhöfnina með svo skömmum fyrirvara.
Farþegar voru margir hverjir sárir og svekktir og sagði í frétt mbl.is af málinu í morgun að reiði hafi gripið um sig meðal farþega. Fengu þeir smáskilaboð frá flugfélaginu um það leyti sem þeir voru að búa sig undir að ganga um borð í vélina.
Að minnsta kosti einn farþegi hefur tjáð sig um málið á Facebook í morgun og taggar viðkomandi flugfélagið í færslu sinni.
„PLAY var að aflýsa fluginu mínu með hálftíma fyrirvara. Sat fyrir framan gate-ið mitt þegar ég fékk sms. Einu upplýsingarnar sem hafa borist er að það sé verið að reyna að vinna að lausn. Á meðan sitjum við á gólfinu á flugvellinum við innganginn með töskuna okkar. Úff hvað ég er fúl og börnin mín sár….“