Play ætlar í loftið í októ­ber

„Við erum með að­gang að nægri fjár­mögnun til að fara í loftið,“ segir Skúli Skúla­son, stjórnar­for­maður Play, í sam­tali við Við­skipta­blaðið í dag. Hann segir að ef CO­VID-19 far­aldurinn þróast í já­kvæða átt sé stefnt að því að hefja á­ætlunar­flug í októ­ber næst­komandi.

Skúli segir ekki ljóst hvort byrjað verði með eina eða fleiri vélar og bendir hann á að mikill tími fari í við­ræður við flug­véla­leigu­sala, bæði um kjör og tegundir véla og hvernig þær passa inn í sam­setningu á fram­tíðar­flota fé­lagsins. Að­gangur að vélum sé þó góður um þessar mundir.

„Hæg­lega gætu menn verið komnir með 6 til 8 vélar strax í haust og 10 til 15 vélar næsta sumar ef þyrfti. Lands­lagið á flug­véla­leigu­markaði hefur breyst mjög mikið á síðast­liðnum tveimur eða þremur mánuðum og kjörin allt önnur í dag en bara síðustu ára­mót, enda fleiri þúsund vélar orðnar heimilis­lausar,“ segir hann.