Pistill sem Óttar Guðmundsson geðlæknir skrifaði í Fréttablaðið árið 2017 er nú einn sá mest lesni á fréttavef Vísis. Þó að pistillinn sé fimm ára gamall á hann vafalítið jafn vel við í dag og þá en í honum skrifar Óttar um svokallað örmögnunarþunglyndi.
Í pistlinum, sem birtist á baksíðu Fréttablaðsins fyrir nær sléttum fimm árum, 24. júní 2017, lýsir Óttar því að hann hafi verið á fundi með skandinavískum geðlæknum þar sem viðfangsefnið var fyrirbæri sem Svíar kalla „utmattningsdepression“ eða örmögnunarþunglyndi sem færi hratt vaxandi.
„Lýsingin gæti verið þessi: Manneskja á aldrinum 30-60 ára í krefjandi starfi. Vinnan verður með tímanum æ flóknari og kröfurnar um alls kyns tæknikunnáttu æ meiri. Fólk verður að tileinka sér tækninýjungar sem smám saman verða yfirþyrmandi. Kröfurnar í einkalífinu aukast að sama skapi. Skutla þarf heimilisfólki í alls konar tómstundastarf og sjá um heimilisstörf, eldamennsku, þvott og bílinn. Og ekki þarf að fjölyrða um það að samlíf hjóna versnar eftir því sem álagið eykst. Heimilið breytist smám saman í fyrirtæki sem verður að halda gangandi og sjá til þess að allir standist kröfur skólans, vinnunnar og einkalífsins,“ sagði Óttar í pistli sínum og bætti við að þessu fylgdu ótrúlegar nýjungar í samskiptatækni svo að allir séu alltaf ínáanlegir. Símarnir gelti þar að auki stanslaust með nýjar kröfur, nýjar myndir og skilaboð og hraðinn aukist sífellt.
„Skyndilega var eins og viðkomandi keyrði á fullri ferð á vegg. Hann gafst upp, missti kjark og trú á sjálfan sig og lagðist í rúmið. Mannsheilinn var hreinlega ekki hannaður fyrir þetta álag. Hann gat ekki sinnt öllum verkefnum samtímis. Tæknin hafði tekið öll völd og gert lífið óviðráðanlegt,“ sagði Óttar og bætti við að þetta hafi minnt hann á Glám í Grettis sögu.
„Vinnumaðurinn tók smám saman öll völd á heimili húsbænda sinna og reið húsum fúll á svip. Það varð Gretti dýrkeypt að sigra drauginn enda týndi hann sjálfum sér. Menn eru jafn ráðalausir gagnvart þessum Glámi nútímans. Maðurinn á enga aðra kosti en gangast draugnum á vald með ófyrirsjáanlegum afleiðingum eða hætta að láta tæknina stjórna lífi sínu.“