Þingmenn Pírata hafa lagt fram frumvarp um lækkun hámarksökuhraða í þéttbýli. Megintillaga frumvarpsins er að hámarkshraði í þéttbýli verði 30 kílómetrar á klukkustund, en sveitarstjórn verði þó heimilt að ákveða hærri hraðamörk ef aðstæður leyfa.
Þetta er í þriðja skiptið sem frumvarpið er lagt fram, en það var einnig lagt fram á síðasta og þarsíðasta þingi af Pírötum.
„Með því verður stigið mikilvægt skref í átt að öruggara umhverfi fyrir fólk og því að ákvarðanir um helstu þætti samgangna í þéttbýli verði í höndum þeirra stjórnvalda sem standa íbúum næst, en nú hefur Vegagerðin yfirumsjón með þjóðvegum í þéttbýli,“ segir í greinargerð sem fylgir frumvarpinu.
Þar kemur fram að með því að hægja á umferð megi ekki einungis skapa öruggara umhverfi og draga úr slysum á gangandi og hjólandi vegfarendum, heldur styður sú þróun einnig við markmið í umhverfis og loftslagsmálum.
Víða hefur hámarkshraði í Reykjavíkurborg verið lækkaður en í sextíu prósent íbúðargatna í borginni er hámarkshraði 30 kílómetrar á klukkustund eða lægri.
„Hraðari bílaumferð í þéttbýli fylgja margs konar vandamál, ekki síst varðandi öryggi óvarinna vegfarenda á þeim fjölmörgu svæðum sem fyrst og fremst hafa verið hönnuð með bílaumferð í huga.“
Þá segir einnig að með lægri ökuhraða fylgir minni mengun og aukið svigrúm fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur, sem auðveldar fólki að velja sér umhverfisvænni samgöngumáta en einkabílinn.
„Það er mat flutningsmanna að sú lækkun almenns hámarkshraða sem lögð er til í frumvarpi þessu sé ekki aðeins þörf og tímabær, heldur jafnframt í fullu samræmi við yfirlýst markmið stjórnvalda varðandi umferðaröryggi,“ segir í greinargerðinni.