Píratar svara fyrir sig: „Þetta er nú bara fyndið, Björn Ingi“

Björn Ingi Hrafnsson, ritstjóri Viljans og samfélagsrýnir, segir tilboð Pírata um að verja minnihlutastjórn Vinstri grænna, Framsóknarflokksins og Samfylkingarinnar, lítils eða einskis virði.

„Stjórnskipulag Pírata er þess eðlis að flokkurinn getur varla tekið þátt í ríkisstjórnarsamstarfi. Flatur strúkturinn virkar þannig að ekki væri nóg að mál hefði fengið umfjöllun í ríkisstjórn og þingflokkum flokkanna fjögurra, heldur þyrfti líka að fá samþykki fyrir þeim í grasrót Pírata sem hefði þannig úrslitavald og eiginlegt neitunarvald í stóru sem smáu,“ segir Björn Ingi á Facebook. Innlegg hans í umræðuna varð uppspretta að miklum deilum.

Glúmur Baldvinsson, sem stefnir á borgarstjórn næsta vor, segir þetta hárrétt:

„Píratar eru einsog Kvennalistinn í den. Óstjórntækir.“

Björn Ingi hafnar þessu og segir: „Ég tel reyndar að Kvennalistinn hafi verið stórmerkileg pólitísk hreyfing sem hafi haft áhrif langt út fyrir sínar raðir. Guðrún heitin Ögmundsdóttir og Ingibjörg Sólrún eru t.d. stjórnmálakonur sem eiga síst af öllu skilið að vera nefndar óstjórntækar. Þær voru allar þungavigt í íslenskum stjórnmálum og nefna mætti fleiri nöfn.“

Ólína Þorvarðardóttir, fyrrverandi þingmaður, sagði þetta útspil hjá Pírötum: „Flott útspil hjá Þórhildi Sunnu, sýnir pólitiskt þor og hugsun.“

Halldór Auðar Svansson, fyrrverandi oddviti Pírata í borgarstjórn, baunar á Björn Inga og segir:

„Fyndið að henda í svona pistil og bara sleppa því alveg að taka farsælt tæplega tveggja kjörtímabila meirihlutasamstarf í borginni með í reikninginn.“

Píratinn Jón Þór Ólafsson segir þetta alrangt:

„Rétt eins og með stjórnarsáttmála þá færi slík tillaga í kosningu meðal allra Pírata, og væri hún samþykkt þá myndu þingmenn Pírata hafa fullt umboð til að verja ríkisstjórnina falli.“

Undir það tekur Píratinn Helgi Hrafn Gunnarsson:

„Þetta er nú bara fyndið, Björn Ingi. Þetta er sama vitsmunalega letin og er því miður landlæg í íslenskum stjórnmálum. Fyndið hvernig það opinberast hversu þröngan skilning íhaldsöflin hafa á stjórnarfari. Í fyrsta lagi er Halldóra Mogensen nú þegar með umboð til viðræðna frá flokknum,“ segir hann og bætir við:

„Umboðið er með 97,30% greiddra atkvæða.

Í öðru lagi liggur fyrir að stjórnarsamstarf færi til samþykktar flokksins sjálfs með sama hætti, enda kannski góð hugmynd að láta flokkinn sem kom manni til valda hafa eitthvað um það að segja hvernig sé farið með valdið. Þegar stjórnarsáttmálinn væri samþykktur væri það með opin augun fyrir því hvað það myndi þýða.

Það er ekkert flókið við þetta. Fyndið hvernig íhaldsmenn láta alltaf eins og að það sé samasemmerki milli upplausnar og þess að fá samþykki þeirra sem verða fyrir valdinu.“