Píratar munu beita sér hart gegn nýju útlendingafrumvarpi

Eldhúsdagsumræður, fóru fram á Alþingi í gærkvöldi en þinglok fyrir sumarfrí eiga að verða á föstudag þótt margt bendi til þessa að svo verði ekki. Margir klukkutímarnir á þingfundum í sal hafa undanfarið farið í umræður um samgöngumál – Miðflokksmenn talað lengi, sér í lagi í andstöðu við Borgarlínu.

Jón Gunnarsson varaformaður Umhverfis- og samgöngunefndar, Sjálfstæðisflokki og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata mættu í þáttinn 21 til Lindu Blöndal.

Stór mál eins og frumvarp fyrir hlutdeildarlánum, fjölmiðlafrumvarpið og frumvarp dómsmálaráðherra fyrir breyttum útlendingalögum eru enn óafgreidd að ógleymdri samgönguáætlun sem samkvæmt lögum skal setja. Í henni er m.a. samkomulagið við stóru sveitarfélögin á Höfuðborgarsvæðinu um ýmsar samgöngubætur s.s. Borgarlínu.

Píratar eru harðir á móti nýju frummvarpi til útlendingarlaga og heimildir Hringbrautar eru fyrir því að þingflokkurinn mun standa á móti þinglokum ef frumvarpið á að samþykkja.

21 er á dagskrá á milli 21 og 21.30 og svo á flakkinu.