Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir og Björn Leví Gunnarsson, þingmenn Pírata vilja að refsiheimild vegna birtingar kláms, innflutnings, sölu útbýtingar eða annars konar dreifingar verði felld úr gildi í lögum og hafa lagt fram frumvarp þess efnis.
„Almennt er það ekki talið vera í verkahring yfirvalda að ákveða hvers konar kynlíf fólk kjósi að stunda hvert með öðru, heldur snýst umræða um siðferðisleg mörk kynlífs fyrst og fremst um að til staðar sé upplýst samþykki allra sem í hlut eiga,“ segir í greinargerð frumvarpsins.
Benda þau á að lög hérlendis um klám hafi staðið að mestu óbreytt í 153 ár. Viðhorf til kynlífs og umræða hafi hinsvegar breyst.
Danir hafi fellt úr gildi bann við klámi 1969, Svíar aldrei tekið slíkt upp og í Finnlandi sé dreifing þess einungis ólögleg ef í því má finna ofbeldi, börn eða dýr.