Fyrirtækið Pink Iceland er áhugaverð ferðaskrifstofa en markhópur þess er hinsegin fólk. Eva María Þórarinsdóttir Lange byrjaði með það sem skólaverkefni í háskólanum en það vatt upp á sig og er núna fyrirtæki með tíu starfsmenn og á beinu brautinni þar sem það er rekið með hagnaði.
Eva María er gestur Jóns G. og fer yfir markaða stefnu fyrirtækisins og viðskiptahugmyndina.
Hún segir að það sem gefi mest af sér innan fyrirtækisins eru brúðkaupin en í ræðu í Kauphöllinni nýlega upplýsti Eva María að um helmingur brúðhjóna væri engu að síður gagnkynhneigður.
Fyrirtækið er einnig með skipulagðar hópferðir um allt land. Bandaríkjamenn eru uppstaðan í hópi viðskiptavina og koma langflestir þaðan. „Við búm að því að viðskiptavinir okkar eru fremur efnaðir og líður vel í eigin skinni,“ segir Eva María í þættinum.
Kl. 20:30 í kvöld.