„Píningsveturinn er að baki“

„Píningsveturinn er að baki, sumarið heilsar okkur, lóan er komin og það á að hlýna í vikunni.“

Þetta sagði Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra í ávarpi sínu í kvöld þar sem hún fór yfir stöðu mála og árangur Íslendinga í baráttunni við farsóttina.

Óþekktur andstæðingur

„Veiran er enn óþekktur andstæðingur þó að þekking á henni vaxi hratt, meðal annars vegna þess sem er gert hér á landi. Ekki hefur enn tekist að þróa lyf eða bóluefni en unnið er að slíkum rannsóknum víða um heim. Vonir og væntingar standa til þess að vel muni ganga, en við skulum varast óraunsæi og búa okkur undir að það taki tíma að ná árangri í þeim efnum.“

Hún sagði að á þessum óvissutímum neyddust allar þjóðir heims og einstaklingar til að gera áætlanir fram í tíamnn án þess að vita í raun hvernig sá tími verður.

Risið undir ábyrgð

Áhersla stjórnvalda hafi verið á að miðla upplýsingum til þjóðarinnar svo hún gæti unnið saman og traust lagt á samstöðu hennar fremur en að setja á útgöngubann.

„Við höfum saman risið undir þeirri ábyrgð og getum öll verið stolt af því að tilheyra slíku samfélagi.“

Katrín sagði að framundan væru strembnir tímar en að síðustu vikur hafi verið lærdómsríkar.

Tilefni væri til þess að gleðjast yfir því að heilbrigðiskerfið hafi staðist þetta mikla álagspróf og að þjóðin hafi sýnt samstöðu og náungakærleik á þessum erfiðu tímum.

„Þó að útlitið sé svart til skamms tíma er það bjart til lengri tíma og allt sem við gerum núna þarf að styðja við framtíðina.“

Lesa má nánari umfjöllun um ávarp forsætisráðherra á vef Fréttablaðsins.