Pétur Georg Markan hjá Þjóðkirkjunni skrifaði áhugaverða grein í Fréttablaðið í morgun, þar sem hann heldur því meðal annars fram að Jesús Kristur sé hommi og trans.
„Í upphafi sumars átti ég áhugavert samtal um Guð, sem oftar. Að þessu sinni snerist umræðan um þennan dæmandi, refsandi Guð sem birtist okkur í Gamla testamenti biblíunnar. Spjallið klifraði síðan í betra skyggni og vatt sér yfir í pælingar um þennan alltumvefjandi Guð Nýja testamentisins. Ég var sumsé á hlaupunum með skokkhópnum þegar umræðan tókst á flug.
Í framhaldinu dýpkaði umræðan og hóf að kryfja sístætt verkefni guðfræðinnar og heimspekinnar; breytist Guð?
Kollgátuna í hópnum átti sjálfsagt sá sem engu trúir: „Guð getur aðeins þróast með manninum“ – „og öfugt“. Ég er samt ekkert viss um að við séum að hugsa þetta eins. Um leið og gátan var leyst gall í snjallúrinu hans að „peisið“ væri undir viðmiði og að óbreyttu næði hlauparinn ekki settu marki. Kannski Guð búi í snjallúrinu, amma. Hið dæmandi lögmál er víða.“
Svona hefst grein Péturs, sem heldur áfram að fjalla um samtal sitt við Guð.
„Seinna um sumarið var ég staddur í vinahópi á Ströndum. Það er bein tenging við undrið að dvelja í Ófeigsfirði albjarta sumarnótt. Sjá himininn veita deginum bálför guðanna – upplifa sólina hníga og rísa á fremsta bekk. Það er bara ekkert eins og þetta.
Mörg undur tilvistarinnar helga sannfæringuna um tilvist Guðs. Annað undur er kraftur kærleikans sem birtist í baráttu hinsegin fólks, sem hefur breytt öllu samfélaginu.“
Þá fer hann útí hugmyndina sína um að guðsmyndin sé breytileg og því hljóti Jesús Kristur að vera hinsegin. Hann bendir á fjölbreytileikinn sé jú sköpunarverk Guðs.
Guðsmyndin breytist. Kristur er trans í baráttu trans samfélagsins fyrir viðurkenningu og mennsku. Kristur er hommi þegar ýjað er að kvótasetningu þeirra. Kristur er útvörður mennskunnar, kærleikans og fjölbreytileikans. Enda fjölbreytileikinn sköpun hennar.
Guð breytist – og í Ófeigsfirðinum er hán eins, um aldir alda.“
Hægt er að lesa grein Péturs hér.