Pétur Gunnlaugsson, dagskrárgerðarmaður á Útvarpi Sögu, tekur enga áhættu þegar kórónaveiran er annars vegar og að því er fram kom í símatíma stöðvarinnar í morgun er hann einn fárra sem gengur bæði með andlitgrímu og hanska.
Smitvarnir Péturs Gunnlaugssonar, umsjónarmanns símatíma Útvarps Sögu, komu til umræðu í þættinum í morgun þegar innhringjandi innti Pétur eftir því hvort hann teldist til þeirra fáu sem noti andlitsgrímu á almannafæri á Íslandi.
Pétur staðfesti að hann notaðist bæði við hanska og grímu og furðaði sig á því að slík notkun væri ekki almennari þar sem þótt verjur þessar kæmu ekki „100% í veg fyrir útbreiðslu veirunnar,“ drægju þær „veirunnar en það dregur verulega úr áhættunni.“
Andlitsgrímur verða stöðugt algengari víða erlendis en hafa ekki fest sig í sessi á Íslandi en Pétur setur öryggið á oddinn og lætur það ekki trufla sig. „Það getur vel verið að fólki finnist þetta hallærislegt og það verður bara að hafa það,“ sagði Pétur morgun og bætti við að hann sæi enga ástæðu til að gera lítið úr grímunotkun.
„Þetta smitast með ákveðnum hætti. Ef við stoppum smitleiðirnar eftir því sem við getum best nú þá erum við á réttri leið.“
Pétur horfði einnig til Bandaríkjanna og furðaði sig á því að deilt væri um grímur þar í landi. „Af hverju er þessi vitleysa til dæmis í Bandaríkjunum að menn eru eitthvað feimnir við að ganga með grímur og svo eru menn að deila um hitt og þetta,“ sagði Pétur og bætti við hann væri þó í sjálfu sér ekki fylgjandi þvingunarlögum í þessum efnum.
„Fólk á bara að skynja það að þetta er góð leið til þess að vinna saman að því að tryggja það að veiran hverfi úr okkar samfélagi.“