Pétur: Ó­út­skýrðum dauðs­föllum fjölgað mikið á Ís­landi – „Í ár eru þau rétt að verða 190“

„Það hefur verið mikið að gera,“ segir Pétur Guð­mann Guð­manns­son, réttar­meina­fræðingur á Land­spítalanum, í við­tali í nýjasta tölu­blaði Lækna­blaðsins.

Í við­talinu fer Pétur um víðan völl en það sem vekur einna mesta at­hygli er sú stað­reynd að hann hefur krufið nærri 190 lík vegna ó­út­skýrðra dauðs­falla hér á landi á árinu.

Í við­talinu kemur fram að hann kryfji að­eins þá sem látast skyndi­lega; verða fyrir slysi, láta lífið fyrir eigin hendi eða eru myrt. Sum sé ó­vænt dauðs­föll og engin sjúk­dóms­saga. Hann segir að 8 til 10 prósent þeirra sem deyja fari í réttar­krufningu.

„Um 200 á ári, stöðug tala, en í ár eru þau rétt að verða 190 og þrír og hálfur mánuður eftir af árinu,“ segir hann og bætir við að hans til­finning sé sú að sjálfs­vígum fjölgi.

Í um­fjöllun Lækna­blaðsins kemur fram að Em­bætti land­læknis hafi ekki birt bráða­birgða­tölur úr dánar­meina­skrá í ár þar sem skýrslu­gerð vegna and­látanna hefur dregist vegna á­lagsins. Segir Pétur að hann eigi ó­lokið skýrslum vegna tuga þeirra 186 krufninga sem hann hefur fram­kvæmt það sem af er ári.

Pétur hefur sinnt starfinu einn en í við­talinu kemur fram að hann fái brátt liðs­auka þegar Snjó­laug Níels­dóttir, sem er sér­menntuð í réttar­meina­fræði, kemur og kryfur með honum líkin.

Pétur kom heim frá Sví­þjóð fyrir um tveimur árum, en þar í landi stundaði hann sér­nám hjá Rätts­medicinal­verket í Lin­köping. Hann segir að að­staðan í Sví­þjóð sé önnur og betri en á Ís­landi.

„Maður hefur sama fræði­lega og fag­lega metnað. Hér er maður einn að sýsla í öllu en í Sví­þjóð er fólk sem heldur utan um gæða­hand­bækur og skráningar og annað sem til­heyrir utan­um­haldinu,“ segir hann meðal annars en við­talið má lesa í heild sinni á vef Lækna­blaðsins.