Pétur H Hansen segir inn í Facebook hópnum Vetur á verði – eftirlit með verðalgi að allt sé að hækka í smáum skömmtum til að við áttum okkur ekki á þessum gífurlegu hækkunum.
„Ég fylgist vel með matarverði og hef gert það tilmargra ára. S.l 3 ár hef ég skannað og geymt allar kvittanir fyrir matarinnkaupum í tölvunni.Í gær keypti konan mín lambabóg. Henni fannst hann hafa hækkað í verði,“ skrifar Pétur.
„Að sjálfsögðu fór í í geymslubankann og fann það út að í ágúst sl. kostaði per kíló 1098 krónur. Í dag kostar kílóið 1298 krónur. Eftir smá grúsk þá fann ég auglýsingu síðan í október 2019 að lambabógur frá sama fyrirtæki kostaði 959 krónur kílóið. Verðhækkunin frá ágúst sl. til október er 18,2% það er rífleg hækkun. (það kostar að yfirtaka samkeppnina) Hækkunin frá október 2019 til október 2022 er hvorki meira né minna en 35,35% Þá vitið þið það,“ skrifar Pétur.