Pétur hættir hjá Hrafnistu og tekur við Reykja­lundi

Pétur Magnús­son hefur verið ráðinn for­stjóri Reykja­lundar endur­hæfingar­mið­stöðvar SÍBS frá og með 1. júní næst­komandi. Undan­farin tólf ár hefur Pétur verið for­stjóri Hrafnistu.

Þetta kemur fram í til­kynningu sem annars vegar Reykja­lundur sendi frá sér og hins vegar Hrafnista.

Pétur er lyfja­fræðingur að mennt og með MBA gráðu frá Há­skólanum í Reykja­vík með á­herslu á mann­auðs­stjórnun.

Stjórn Sjó­manna­dags­ráðs hefur falið Sigurði Garðars­syni, fram­kvæmda­stjóra Sjó­manna­dags­ráðs og Nausta­varar, og Maríu Fjólu Harðar­dóttur fram­kvæmda­stjóra heil­brigðis­sviðs Hrafnistu, að taka tíma­bundið við starfinu og munu þau leiða á­fram­haldandi starf­semi, þróun og upp­byggingu Hrafnistu­heimilanna sem eru alls átta að tölu á suð­vestur­horni landsins.

Reykja­lundur er heil­brigðis­stofnun í eigu Sam­bands ís­lenskra berkla- og brjóst­hols­sjúk­linga (SÍBS) og vinnur sam­kvæmt lögum um heil­brigðis­þjónustu á Ís­landi. Um þjónustuna gildir þjónustu­samningur milli Sjúkra­trygginga Ís­lands og Reykja­lundar og þar fer fram al­hliða endur­hæfing sem miðar að því að bæta lífs­gæði, færni og sjálfs­bjargar­getu þeirra sem þangað leita.