Persónuleg þjónusta í boði fyrir eldri borgara sem ekki eru með heimabanka né Íslandsbanka-appi

Jóhanna Erla Birgisdóttir vörustjóri einstaklingssviðs Íslandsbanka verður hjá Sjöfn Þórðar í þættinum Fasteignir og Heimili í kvöld:

Persónuleg þjónusta í boði fyrir eldri borgara sem ekki eru með heimabanka né Íslandsbanka-appið

Það má með sanni segja að í dag fleygi tækninni fram á hverjum degi sem er kærkomið fyrir marga í þessum einkennilegum aðstæðum sem nú eru uppi vegna COVID-19 heimsfaraldurins og því er allra leiða leitað til að vinna að lausnum sem henta öllum. Flestir geta gengið frá öllum sínum greiðslum og skyldum í gegnum heimabanka hjá sínum viðskiptabanka sem og sótt sér frekari þjónustu með rafrænum hætti á veraldarvefnum. En það eru til hópar sem hafa ekki tileinkað sér stafrænar lausnir og fylgt eftir tækninni og halda þeir fast í sínar gömlu hefðir og mæta reglubundið í bankaútibú sín til að sinna sínum greiðslum og skyldum, á þar sérstaklega við eldri borgara. Nú er staðan sú að bankaútibúum hefur verið lokað og þessi hópur þarf annars konar þjónustu. Eldri borgarar hafa margir hverjir ekki tæknivæðst og það er starfsfólk Íslandsbanka meðvitað um. Íslandsbanki hefur lagt sitt af mörkum til að þjónusta alla sína viðskiptavini á sem skilvirkastan og hagkvæmasta hátt líka þá sem ekki hafa tileinkað sér tæknina og þar eru eldri borgara engin undantekning, síður en svo. „Við bjóðum eldri borgurum, sem ekki hafa tök á að nýta sér stafrænar lausnir, að hringja í okkur í sérstakt símanúmer 440-3737 fyrir alla helstu bankaþjónustu,“ segir Jóhanna Erla og segir jafnframt að Íslandsbanki leggi sitt af mörkum að vinna að lausnum fyrir hvern og einn enda séu aðstæður fólks margvíslegar og ólíkar. Meira um þessa mikilvægu þjónustu í þættinum í kvöld.