Perrinn í Rima­hverfi á sér 15 ára sögu: For­eldrar vilja að brugðist verði við strax

Fjöl­margir for­eldrar í Grafar­vogi hafa sett nafn sitt á undir­skriftalista þar sem óskað er sam­ráðs og tafar­lausum að­gerðum til að vernda börn í Rima­hverfi gegn í­trekaðri kyn­ferðis­legri á­reitni.

Eins og Hring­braut greindi frá í vikunni hafa for­eldrar fengið nóg af manni, sem kallaður er „hverfisperrinn“, en í­búar í Rima­hverfi hafa lýst í­trekuðu á­reiti hans. Hefur maðurinn berað sig úti í glugga og fitlað við kyn­færi sín á sama tíma og börn eru að leik fyrir utan hús mannsins. Eru dæmi um að börn hafi orðið vitni að at­hæfi mannsins.

Sigurður Hólm Gunnars­son og Ragn­heiður Lára Guð­rúnar­dóttir, for­eldrar í hverfinu, stigu fram í vikunni og gagn­rýndu það úr­ræða­leysi sem virðist ríkja í málinu.

„Hann á­reitir börnin í hverfinu kyn­ferðis­lega dag eftir dag, viku eftir viku, ára­tugum saman. Hangir í glugganum og fróar sér yfir börnunum sem leika sér á leik­vellinum fyrir framan stofu­gluggann hans. Hann hefur verið kærður marg­sinnis, einu sinni dæmdur og allir vita af honum en ekkert er gert,“ sögðu þau í grein sem birtist á Vísi.

Nú hafa for­eldrar samið form­legt erindi til stjórn­valda vegna málsins og er stefnt að því að af­henda undir­skriftalistann þann 15. júní næst­komandi. Bréfið, sem tugir for­eldra hafa lagt nafn sitt við, er meðal annars stílað á Ás­laugu Örnu Sigur­björns­dóttur, dóms­mála­ráð­herra, Ás­mund Einar Daða­son, fé­lags- og barna­mála­ráð­herra, Barna­verndar­stofu, Barna­vernd Reykja­víkur og Reykja­víkur­borg.

„Í um fimm­tán ár hafa til­kynningar borist af ó­sæmi­legri hegðunar eins íbúa hverfisins er varðar brot á blygðunar­semi barna skv. 209 gr. al­mennra hegningar­laga nr. 1940/19. Brotið hefur verið á fjölda barna með reglu­bundnu at­hæfi ein­stak­lings sem hefur áður hlotið dóma vegna sama at­hæfis. Ekkert lát virðist vera á hegðun við­komandi og óttumst við að hann haldi gjörðum sínum á­fram verði ekki brugðist við með við­eig­andi hætti. Um­ræddur íbúi býr ná­lægt í nokkurra metra fjar­lægð við leik­völl og göngu­leið barna í skóla,“ segir í bréfinu.

Þá segir að börn í hverfinu eigi rétt á að alast upp í öruggu um­hverfi og er vísað í lög­festan Barna­sátt­mála Sam­einuðu þjóðanna. Þar er meðal annars vísað í skuld­bindingar ríkja til að vernda börn fyrir kyn­ferðis­legri mis­notkun

„Teljum við, undir­rituð að vel­ferð og öryggi barna okkar sé ógnað. Bregðast þarf við strax. Því óskum við eftir við­brögðum, sam­ráði og að­gerðum að hálfu ofan­greindra aðila.“

Um 200 ein­staklingar hafa ritað nafn sitt á undir­skriftalistann þegar þetta er skrifað en slóð á hann má nálgast í íbúahópi Grafarvogsbúa á Facebook.