Peninga­þvætti í spila­kössum: Ráð­herra vill inn­leiða nafn­laus spila­kort

Á síðustu fimm árum hafa 34 til­kynningar borist lög­reglu um mögu­legt peninga­þvætti með spila­kössum. Jón Gunnars­son, dóms­mála­ráð­herra, skoðar þann mögu­leika að inn­leiða spila­kort til að sporna gegn peninga­þvætti. Þetta kemur fram í frétt Frétta­blaðsins.

Síðustu fimm ár hafa 34 til­kynningar borist skrif­stofu fjár­mála­greiningu lög­reglu sem varða spila­kassa; engar til­kynningar árið 2017, sex árið 2018, ellefu árið 2019, fjór­tán árið 2020 og þrjár árið 2021.

Spila­kössum var í­trekað lokað í gegnum heims­far­aldur Co­vid-19 sem gæti út­skýrt fá til­felli í fyrra.

Eins og Frétta­blaðið greindi frá árið 2020 upplifðu spílafíklar fresli þegar spilakössum var lokað vegna Covid-19. Sam­tök á­huga­fólks um spila­fíkn sagðist hafa hafa fengið á­bendingar, meðal annars frá spila­fíklum, að lokunin hafi haft já­kvæð á­hrif í för með sér.

Ekki stendur þó til að loka spila­kössum heldur inn­leiða spila­kort til að sporna gegn peninga­þvætti.

Ríkis­lög­reglu­stjóri birti á­hættu­mat í mars 2021 sem fól í sér ítar­lega og heild­stæða greiningu á fyrir­liggjandi á­hættu af peninga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka á þeim mörkuðum og starf­semi sem helst er talið að geti verið út­sett fyrir slíkri á­hættu á Ís­landi.

Í kjöl­far á­hættu­matsins gaf stýri­hópur ráð­herra út að­gerða­á­ætlun þar sem meðal annars var lagt til að inn­leidd verða spila­kort til að tak­marka nafn­leysi spilara og koma í veg fyrir falska vinninga.